Meiri líkur á því að Liverpool vinni Meistaradeildina en Messi með PSG Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. september 2021 09:31 Lionel Messi talar við tyrkneska dómarann Cuneyt Cakir í eftirminnilegum leik á Anfield árið 2019. EPA-EFE/NEIL HALL Tölfræðingarnir á Gracenote hafa reiknað út sigurlíkur liðanna sem taka þátt í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í ár en Bayern München er sigurstranglegasta liðið áður fyrsti leikur fer fram.
Meistaradeildin fer af stað í kvöld og eins og oft áður hafa spekingar leikið sér að því að reikna sigurlíkur liðanna 32 sem komust í riðlakeppnina. Chelsea have a 92 per cent chance of progressing from group H, according to Gracenote, but such statistics only serve to underline just how disastrous it would be for Thomas Tuchel should he stumble at this stage of the competition | @allyrudd_times https://t.co/dcwnyZKPvY— Times Sport (@TimesSport) September 14, 2021 Bayern München er efst á blaði með átján prósent sigurlíkur í Meistaradeildinni, einu prósenti á undan Manchester City liðinu. Real Madrid er í þriðja sæti með tólf prósent og Barcelona er með tíu prósent sigurlíkur í fjórða sætinu. Barcelona missti kannski Lionel Messi fyrir tímabilið en er samt sigurstranglegra í keppninni að mati Gracenote en Evrópumeistarar Chelsea þrátt fyrir að Lundínaliðið hafi bætt við sig einum besta framherja heims í Romelu Lukaku. Sigurlíkur Chelsea eru átta prósent en liðið er einu prósenti á undan Liverpool sem er í sjötta sæti listans. The 96 teams participating in European competition Bayern Munich (ranked 1) #UCL Manchester City (2) #UCL FC Barcelona (3) #UCL Real Madrid (4) #UCL Liverpool (5) #UCL Chelsea (6) #UCL Atlético Madrid (7) #UCL Paris Saint-Germain (8) #UCL1/12— Euro Club Index (@EuroClubIndex) September 13, 2021 Liverpool er þannig á undan ofurliði Paris Saint Germain sem deilir sjöunda sætinu með Atletico Madrid þrátt fyrir að Parísarliðið hafi bætt við sig hverri stórstjörnunni á fætur annarri í sumar. Stærsti liðstyrkurinn var auðvitað í sjálfum Lionel Messi en sigurlíkur hans í Meistaradeildinni minnkuðu við það að færa sig frá Barcelona til Parísar. Bandaríska tölfræðisíðan Fivethirtyeight spáir Manchester City sigri í Meistaradeildinni en í næstu sætum eru síðan Bayern München og Liverpool en svo fylgja Chelsea og Barcelona eftir í næstu sætum. Which outfield summer signing are you backing to make the biggest impact in Paris?A) Lionel MessiB) Sergio RamosC) Achraf HakimiD) Georginio Wijnaldum#UCL pic.twitter.com/EhQXzqNOYn— UEFA Champions League (@ChampionsLeague) September 8, 2021 Þeir ganga enn lengra í að afskrifa Paris Saint Germain en auk Real Madrid og Manchester United þá eru einnig Ajax og Dortmund með meiri sigurlíkur en Lionel Messi, Neymar og félagar þeirra í Paris Saint Germain. Áður en þú getur unnið Meistaradeildina þá þarftu náttúrulega að komast upp úr riðlinum þínum. Þrjú lið eru með níutíu prósent líkur á að ná því samkvæmt útreikningum Gracenota eða lið Real Madrid, Chelsea og Bayern München. Fimm lið til viðbótar eru með áttatíu prósent líkur á því að komast í útsláttarkeppnina samkvæmt útreikningum Gracenote en hvorki Manchester United (78%) né Liverpool (75%) eru í þeim hópi. Þar eru aftur á móti Manchester City, Barcelona, Sevilla, Juventus og Dortmund.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Enski boltinn Bergrós aftur best í heimi og fjögur frá Íslandi í undanúrslitum Sport Sjáðu mömmu Remy Martin syngja og dansa á hliðarlínunni Körfubolti Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Enski boltinn Infantino: Stórkostlegt að hitta Þorvald Fótbolti Danijel Djuric á markið: Annars hefði ég aldrei fagnað svona Íslenski boltinn Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Enski boltinn „Það er ekkert plan B“ Handbolti Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans á Íslandi Íslenski boltinn Ungir strákar þarna úti sem gætu spilað á HM á Íslandi Handbolti Fleiri fréttir Alfons og félagar nálgast Meistaradeildarsæti Áhugaverður skiptidíll FH og Vals á leikdag Í beinni: Valur - FH | Pressa á Valsmönnum Í beinni: Man. Utd. - Sheffield Utd. | Botnliðið mætir á Old Trafford Í beinni: Everton - Liverpool | Bítlaborgarslagur Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans á Íslandi Vestri fær liðsstyrk úr dönsku úrvalsdeildinni Annar heimsmeistari til LAFC Fylkir fær liðsstyrk frá Stjörnunni Óli Kalli í Val og Beitir í HK Danijel Djuric á markið: Annars hefði ég aldrei fagnað svona Infantino: Stórkostlegt að hitta Þorvald Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Tevez fluttur á spítala vegna brjóstverkja Þjálfari hljóp inn á, var rekinn út af og reyndi að faðma dómara Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Fyllir Slot upp í tómarúmið sem Klopp skilur eftir sig? Segir sína menn ekki verðskulda Evrópusæti Segir sitt hlutverk að fá leikmenn til að trúa á verkefnið Fjölnir fyrsta liðið í sextán liða úrslit Juventus í bikarúrslit þrátt fyrir tap Skytturnar tylltu sér á toppinn með stæl Ekroth og þrír aðrir í banni í næstu umferð Bestu deildarinnar Glugginn að lokast – Íslandsmeistari í KFA og Málfríður heim Skorar tíðast allra en missir enn af leikjum Liverpool Gary Martin til Ólafsvíkur Segir viðbrögð fjölmiðla til skammar Ísland hefði mátt taka 26 leikmenn á EM Milan ætlar að reka Pioli Sjá meira