Rafmagn komið aftur á í Grindavík: „Pjúra óheppni að þetta skuli gerast í Grindavík“ Kjartan Kjartansson skrifar 5. mars 2021 21:09 Frá Grindavík eftir að rafmagn komst aftur á í kvöld. Vísir/Egill Allur Grindavíkurbær er kominn með rafmagn aftur fyrir utan eitt fyrirtæki en brunninn háspennurofi er talinn orsök rafmagnsleysisins sem hófst klukkan 13:40 í dag. Ekki er talið að bilunin tengist jarðhræringum síðustu daga.
Egill Sigmundsson, sviðsstjóri rafmagnssviðs HS Veitna, staðfesti við Vísi að rafmagn hefði komist á þá hluta bæjarins sem voru enn í myrkri skömmu fyrir klukkan níu í kvöld. Áður hafði rafmagni verið komið á vesturhelming bæjarins um klukkan sjö. Varðskipið Þór var sent til Grindavíkur í kvöld ef þörf væri á varaafli. Egill segir að kerfi HS Veitna sé orðið stöðugt. Hann hafi ekki heyrt af tjóni sem hafi orðið vegna rafmagnsleysisins í bænum. Mikil jarðskjálftavirkni hefur verið í nágrenni Grindavíkur undanfarna daga og mánuði og hafa stórir skjálftar skekið bæinn. Egill segir að svo virðist sem að brunninn háspennurofi við Austurveg hafi valdið rafmagnsleysinu í dag. Hann telur ekki að það tengist jarðhræringunum. „Bara pjúra óheppni að þetta skuli gerast í Grindavík,“ segir Egill. Spennir í tengivirki Landsnets leysti út í tvígang vegna truflana í kerfi HS Veitna í dag. Eftir að hann komst aftur í rekstur tók þó nokkurn tíma að finna bilunina í kerfi HS Veitna. Vesturhluti bæjarins var án rafmagns í hátt í sex tíma en sá austari í tæpa átta tíma. Uppfært 22:45 Bilun varð í dreifistöð í Hópshverfi í Grindavík á tíunda tímanum í kvöld. HS Veitur sagði í Facebook-færslu klukkan 21:37 að einhvern tíma gæti tekið að koma því í lag.
Grindavík Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Erlent Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Innlent Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Innlent Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Fleiri fréttir Sautján greinst með kíghósta og inflúensan enn að dreifa sér Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Papa's Pizza, verkföll flugvallarstarfsmanna og óvæntur forsetaframbjóðandi Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Framboð Viktors Traustasonar er gilt Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Útimarkaðurinn í Mosó hættir Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Sjá meira