Arnar Þór: Traust og virðing virkar í báðar áttir Smári Jökull Jónsson skrifar 11. október 2021 21:50 Arnar Þór á hliðarlínunni í kvöld. Vísir/Vilhelm Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari var spurður út í mál Jóhanns Bergs Guðmundssonar og Guðlaugs Victors Pálssonar eftir leikinn gegn Lichtenstein í kvöld. Hann sagði að traust og virðing virkaði í báðar áttir, það væri ekki bara bara hægt að gefa í aðra áttina.
Guðlaugur Victor Pálsson yfirgaf landsliðshópinn eftir leikinn gegn Armeníu þar sem hann var í byrjunarliðinu og hélt aftur til félagsliðs síns Schalke. Arnar Þór Viðarsson sagði í viðtali í gær að hann hefði viljað halda Guðlaugi Victori en að valið hefði verið hans. „Ég virði ákvörðun Gulla. Félagið hans er sá aðili sem borgar launin og ég skil knattspyrnuheiminn mjög vel. Við þurfum ekkert alltaf að vera sammála. Það eina sem gerist þegar menn eru ekki á svæðinu er að þá kemur möguleiki fyrir aðra að stíga inn og gera vel,“ sagði Arnar Þór um fjarveru Guðlaugs Victors. Hann sagði það draum margra að spila fyrir landsliðið. „Ef við horfum til dæmis á Stefán Teit Þórðarson, það sem Þórir Jóhann er að gera og svo framvegis. Það eru margir drengir og stúlkur sem eiga þann draum að spila fyrir landsliðið. Þetta verður rætt, ég skil ákvörðun Gulla en ég er ekki sammála henni. Traustið er ekki farið út um gluggann“ Ekki beint gegn þjálfurum eða liðinu Jóhann Berg bar fyrirliðaband Íslands í tapinu gegn Rúmeníu í september.Vísir/Hulda Margrét Þá var Arnar Þór einnig spurður út í Jóhann Berg Guðmundsson sem gaf ekki kost á sér í þetta landsliðsverkefni vegna meiðsla. Jóhann Berg viðurkenndi þó í viðtali að það hefði haft áhrif á ákvörðun hans að hann væri ekki fyllilega sáttur með vinnubrögð Knattspyrnusambands Íslands undanfarið. „Ég mun ræða við alla leikmenn. Ég hef það fyrir vinnureglu að taka enga ákvörðun út frá tilfinningum,“ sagði Arnar Þór þegar hann var spurður hvort fjarvera Jóhanns Bergs og Guðlaugs Victors myndi hafa áhrif á val á landsliðshópi fyrir næsta verkefni. „Eins og ég skildi þetta frá Jóa þá var þessu alls ekki beint í átt að liðinu, starfsfólki, þjálfurum eða hópnum. Ég tók því þannig en við þurfum að spyrja hann að því. Að sjálfsögðu er það mikilvægt til að gefa fullt traust að traustið og virðingin sé í báðar áttir, það er ekki bara hægt að gefa. Maður þarf að finna að menn séu með af fullum krafti.“ Hannes Þór Halldórsson lagði landsliðshanskana á hilluna eftir síðasta landsliðsverkefni. Arnar Þór sagðist ekki vita um neina leikmenn sem væru að íhuga það að hætta með landsliðinu. „Ég veit ekki um neina. Þetta snýst um að menn séu „all in“ í landsliðinu. Menn sem eru það og með alla þessa reynslu eru svo sannarlega velkomnir. Við þurfum á þessum leikmönnum að halda svo liðið geti tekið þessi skref sem það þarf sem fyrst.“
HM 2022 í Katar KSÍ Tengdar fréttir „Gulli taldi það mikilvægara fyrir sjálfan sig að fara aftur til síns félags“ „Ég held bara áfram með þá sem eru 100 prósent klárir fyrir landsliðið,“ sagði Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari í fótbolta, þegar hann ræddi við Vísi um óvænt brotthvarf Guðlaugs Victors Pálssonar úr landsliðshópnum. 11. október 2021 09:01 Vinnubrögð KSÍ höfðu áhrif á ákvörðun Jóhanns Jóhann Berg Guðmundsson verður ekki með fótboltalandsliðinu sem mætir Armeníu og Liechtenstein í undankeppni HM á næstunni. Hann segir vinnubrögð KSÍ hafa haft sitt að segja um þá ákvörðun sína að draga sig úr hópnum. 4. október 2021 11:00 Mest lesið Gat ekki staðið upp til að taka við bikarnum Sport Ten Hag: Leikmennirnir hefðu átt að halda áfram að berjast líkt og stuðningsfólkið Enski boltinn „Höfum engu að tapa núna“ Fótbolti „Segir þeim að hætta þessu fokking rugli“ Fótbolti „Ótrúlega stoltur að klára mjög sterkt og vel mannað Grindavíkurlið“ Körfubolti „Það er þjálfarinn sem á að stíga upp og finna betri lausnir“ Körfubolti Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - Valur 2-3 | Manni færri héldu gestirnir út Íslenski boltinn Mari meyr eftir sigurinn Sport Mari Järsk sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Fjórir frá vegna meiðsla: „Dagurinn ekkert frábær á skrifstofunni“ Handbolti Fleiri fréttir Ten Hag: Leikmennirnir hefðu átt að halda áfram að berjast líkt og stuðningsfólkið „Segir þeim að hætta þessu fokking rugli“ „Höfum engu að tapa núna“ Hákon Arnar fékk gult þegar Lille henti frá sér unnum leik Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - Valur 2-3 | Manni færri héldu gestirnir út Crystal Palace lék sér að Man United Van Dijk vill hjálpa til við að skrifa næsta kafla Liverpool Sara Björk hafði betur gegn Alexöndru Eyddi öllum Liverpool-myndum Lýkur Gylfi markaþurrð Vals á Kópavogsvelli? Nánast uppselt á leik kvöldsins Dómarinn verður með myndavél á höfðinu Freyr nærri kraftaverki: „Þetta var fokking taugatrekkjandi“ Bæjarar skoði að ráða ten Hag Öll mörkin í gær: Sjáðu hvernig HK vann meistarana og kóngurinn komst á blað Lopetegui tekur við West Ham Lýsti Haaland sem „ofdekruðum krakka“ Stórfurðuleg atburðarás þegar markvörður KR sá rautt Aðeins einum leik frá ótrúlegu meti Albert Guðmunds: Verður að hafa sjálfstraust og trúa á sjálfan þig Miðvarðamartröð Man United heldur áfram „Ég vona innilega að ég sé ekki að væla of mikið“ „Ólíkir okkur að mörgu leyti“ Uppgjör: HK - Víkingur 3-1 | Botnliðið lagði meistarana og Arnar sá rautt Uppgjör og viðtöl: Fram - Fylkir 2-1 | Heimamenn upp í þriðja sætið „Eftir það fannst mér við bara slökkva ljósin og fara heim“ „Hef aldrei séð markmann fá gult spjald fyrir leiktöf eftir átta sek” „Við missum okkur ekkert yfir þessum sigri“ Lærisveinar Freys felldu Guðlaug Victor og Alfreð Finnboga „Komum sterkt til baka og kláruðum þetta“ Sjá meira
„Gulli taldi það mikilvægara fyrir sjálfan sig að fara aftur til síns félags“ „Ég held bara áfram með þá sem eru 100 prósent klárir fyrir landsliðið,“ sagði Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari í fótbolta, þegar hann ræddi við Vísi um óvænt brotthvarf Guðlaugs Victors Pálssonar úr landsliðshópnum. 11. október 2021 09:01
Vinnubrögð KSÍ höfðu áhrif á ákvörðun Jóhanns Jóhann Berg Guðmundsson verður ekki með fótboltalandsliðinu sem mætir Armeníu og Liechtenstein í undankeppni HM á næstunni. Hann segir vinnubrögð KSÍ hafa haft sitt að segja um þá ákvörðun sína að draga sig úr hópnum. 4. október 2021 11:00
Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - Valur 2-3 | Manni færri héldu gestirnir út Íslenski boltinn
Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - Valur 2-3 | Manni færri héldu gestirnir út Íslenski boltinn