Klopp skýtur á Sádana: „Kannski vilja þeir kaupa alla ensku úrvalsdeildina“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. október 2021 15:00 Jürgen Klopp segir Roberto Firmino til á æfingu Liverpool. getty/Nick Taylor Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, sendi nýjum eigendum Newcastle United pillu á blaðamannafundi í dag. Hann sagði að þeir gætu eflaust keypt alla ensku úrvalsdeildina ef þeir hefðu áhuga á því.
Sádí-arabíski fjárfestingasjóðurinn PIF gekk frá yfirtöku á Newcastle í síðustu viku. Nýju eigendurnir eru vellauðugir en auðæfi þeirra eru metin á 320 milljarða punda. Ekkert fótboltafélag í heiminum á núna ríkari eigendur en Newcastle. Stuðningsmenn Newcastle eru mjög spenntir fyrir komandi tímum en ekki eru allir jafn ánægðir. Ýmis mannréttindasamtök hafa gagnrýnt yfirtöku Sádí-Arabanna á Newcastle harðlega enda er staða mannréttinda þar í landi er afleit. Þá lýstu hin félögin í ensku úrvalsdeildinni yfir andstöðu við kaup Sádí-Arabanna á Newcastle. Á blaðamannafundi í dag sagði Klopp að ekki væri langt þar til Newcastle kæmist á toppinn á Englandi krafti auðæfa Sádí-Arabanna. „Það eru augljóslega áhyggjur af mannréttindum eins og við vitum öll. Hvað þýðir þetta fyrir fótboltann? Fyrir nokkrum mánuðum var mikið fjaðrafok vegna Ofurdeildarinnar, og það skiljanlega. Þetta er eins og að búa til ofurlið sem verður fastagestur í Meistaradeild Evrópu eftir nokkur ár. Það er alveg ljóst,“ sagði Klopp. „Ef eigendurnir eru þolinmóðir verða þeir með ofurlið eftir fimm til sex ár. Þeir eiga nógu mikinn pening til að kaupa alla ensku úrvalsdeildina og kannski vilja þeir það.“ Þriðja félagið sem er í eigu ríkis Klopp sagði jafnframt að fjárhagslegt bolmagn væri ekki ávísun á árangur og meira þurfi til. „Stuðningsmenn Newcastle elska þetta, að sjálfsögðu. En fyrir okkur hin er þetta nýtt ofurlið í Newcastle. Það er ekki hægt að kaupa allt með peningum. Þetta tekur tíma. Þeir hafa nógu mikinn tíma til að taka rangar ákvarðanir, svo réttar ákvarðanir og komast þangað sem þeir vilja,“ sagði Klopp. „Enska úrvalsdeildin hugsaði: prófum þetta. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þetta gerist. Þetta er þriðja félagið sem er í eigu ríkis. Við þurfum að glíma við þetta. Góðar ákvarðanir eru mikilvægari en peningar og þetta gerist ekki á einni nóttu. Það er ekki öruggt að Newcastle haldi sér uppi. Miklar breytingar eru í vændum.“ Liverpool sækir Watford heim í ensku úrvalsdeildinni á morgun á meðan Newcastle fær Tottenham í heimsókn í fyrsta leiknum eftir yfirtöku Sádí-Arabanna á félaginu.
Enski boltinn Mest lesið „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn De Zerbi hættir hjá Brighton Enski boltinn Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Fury í ham og ýtti Usyk í vigtuninni Sport Fleiri fréttir Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Stjóri Spurs ósáttur við viðhorfið: „Þetta er utan félagsins, innan þess, alls staðar“ Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Telja að Bruno verði áfram á Old Trafford Sagði sína menn hafa þurft að þjást og hrósaði varamarkverðinum Varamarkmaðurinn og Håland hetjurnar: Man City á toppinn fyrir lokaumferðina Sjá meira