Vaktin: Ragnar Þór endurkjörinn formaður Bjarki Sigurðsson og Atli Ísleifsson skrifa 15. mars 2023 12:03 Ragnar Þór Ingólfsson var í dag endurkjörinn formaður VR. Vísir/Vilhelm Ragnar Þór Ingólfsson var í dag endurkjörinn formaður VR og ný stjörn kjörin. Úrslitin voru kynnt frambjóðendum um klukkan 13:30 í dag. Ragnar Þór hlaut 57 prósent atkvæða gegn 39,4 prósentum Elvu. Kosningaþátttaka var rétt rúmlega 30 prósent og hefur aldrei verið meiri í sögu félagsins. Atkvæðagreiðslu lauk klukkan 12 en hún hafði verið í gangi síðan miðvikudaginn 8. mars, fyrir viku síðan. Kosningabaráttan milli Elvu og Ragnars hefur verið hörð og hafa ásakanir gengið á víxl um óheiðarleika og fleira. Þetta er í þriðja sinn Ragnar ber sigur úr býtum í formannskjöri hjá VR en hann sigraði einnig árið 2017 og 2021. Árið 2019 var hann sjálfkjörinn. Greidd atkvæði voru 11.996 talsins en á kjörskrá voru 39.206 félagar. Kosningaþátttaka var því 30,6 prósent. Ragnar Þór hlaut 6.842 atkvæði gegn 4.732 atkvæðum Elvu. Samhliða formannskosningunni fór fram stjórnarkjör í félaginu þar sem kjörnir voru sjö stjórnarmenn til tveggja ára samkvæmt fléttulista og þrír varamenn til eins árs. Eftirfarandi voru kjörin í stjórn VR til tveggja ára: Halla Gunnarsdóttir Sigurður Sigfússon Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir Ólafur Reimar Gunnarsson Jennifer Schröder Þórir Hilmarsson Vala Ólöf Kristinsdóttir Ævar Þór Magnússon, Kristjana Þorbjörg Jónsdóttir og Gabríel Benjamin voru svo kosin varamenn í stjórn til eins árs. Halla Gunnarsdóttir, Ólafur Reimar Gunnarsson, Jennifer Schröder og Vala Ólöf Kristjánsdóttir koma öll ný inn í stjórn. Alls voru sextán manns sem buðu sig fram til stjórnar í VR.
Atkvæðagreiðslu lauk klukkan 12 en hún hafði verið í gangi síðan miðvikudaginn 8. mars, fyrir viku síðan. Kosningabaráttan milli Elvu og Ragnars hefur verið hörð og hafa ásakanir gengið á víxl um óheiðarleika og fleira. Þetta er í þriðja sinn Ragnar ber sigur úr býtum í formannskjöri hjá VR en hann sigraði einnig árið 2017 og 2021. Árið 2019 var hann sjálfkjörinn. Greidd atkvæði voru 11.996 talsins en á kjörskrá voru 39.206 félagar. Kosningaþátttaka var því 30,6 prósent. Ragnar Þór hlaut 6.842 atkvæði gegn 4.732 atkvæðum Elvu. Samhliða formannskosningunni fór fram stjórnarkjör í félaginu þar sem kjörnir voru sjö stjórnarmenn til tveggja ára samkvæmt fléttulista og þrír varamenn til eins árs. Eftirfarandi voru kjörin í stjórn VR til tveggja ára: Halla Gunnarsdóttir Sigurður Sigfússon Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir Ólafur Reimar Gunnarsson Jennifer Schröder Þórir Hilmarsson Vala Ólöf Kristinsdóttir Ævar Þór Magnússon, Kristjana Þorbjörg Jónsdóttir og Gabríel Benjamin voru svo kosin varamenn í stjórn til eins árs. Halla Gunnarsdóttir, Ólafur Reimar Gunnarsson, Jennifer Schröder og Vala Ólöf Kristjánsdóttir koma öll ný inn í stjórn. Alls voru sextán manns sem buðu sig fram til stjórnar í VR.
Stéttarfélög Vinnumarkaður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira