Annar meirihluti ef Framsókn gengur inn í samstarfið Kjartan Kjartansson skrifar 18. maí 2022 18:22 Viðreisn getur unnið bæði til hægri og vinstri, að sögn Þórdísar Lóu Þórhallsdóttur, oddvita flokksins í borginni. Vísir/Vilhelm Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar, segir að ef Framsóknarflokkurinn fer í samstarf við þrjá fráfarandi meirihlutaflokkana í borginni þá verði það annar meirihluti en sá sem er að líða undir lok. Ekki sé ólíklegt að Viðreisn og Framsókn vinni saman á nýju kjörtímabili.
Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Viðreisnar hafa sagst ætla að fylgjast að við upphaf viðræðna flokkanna eftir borgarstjórnarkosningarnar á laugardag. Meirihluti flokkanna þriggja og Vinstri grænna féll þar sem Samfylkingin tapaði tveimur mönnum og Viðreisn einum. Framsóknarflokkurinn virðist í kjörstöðu með þá fjóra nýju menn sem hann náði inn. Þá virðist ekki hægt að mynda raunhæfan meirihluta í borginni án þátttöku Viðreisnar. Í færslu á Facebook-síðu sinni skrifar Þórdís Lóa að Viðreisn sé nú komin í það hlutverk að aðrir flokkar vilji vinna með henni í Reykjavíku, hvoru megin við miðju sem þeir standi. Hún rekur það til þess að Viðreisn geti unnið bæði til hægri og vinstri. Það hafi flokkurinn sýnt á síðasta kjörtímabili þar sem hann var í meirihluta með flokkum sér til vinstri en á sama tíma hafi hann unnið náið með fulltrúum Sjálfstæðisflokks að nýrri eigendastefnu borgarinnar og atvinnu- og nýsköpunarstefnu. Um samstarfsflokkana í fráfarandi meirihluta segir Þórdís Lóa að þeir eigi málefnalega samleið í mikilvægum málaflokkum sem snúi að framtíð borgarinnar, þar á meðal í skipulagsmálum, samgöngumálum og stafrænni uppbyggingu. „Þetta eru allt saman málaflokkar þar sem Framsóknarflokkurinn virðist standa nærri okkur, sé mið tekið af kosningaloforðum. En slíkur meirihluti yrði annar meirihluti en sá sem er nú að líða undir lok. Það er alveg augljóst,“ skrifar oddviti Viðreisnar. Segist Þórdís Lóa hafa átt gott kaffispjall við Einar Þorsteinsson, oddvita Framsóknarflokksins. Af þeim meirihlutamöguleikum sem séu uppi sé ekki ólíklegt að flokkarnir tveir endi í samstarfi þó að aðrir leikir séu vissulega í stöðunni. „Hver sem niðurstaðan verður í þessum blikkleik, þá skiptir það mestu að komast að niðurstöðu um málefnasamning sem bindur næsta meirihluta saman. Það eru málefnin sem eiga að ráða för en ekki stólarnir,“ skrifar hún.
Sveitarstjórnarkosningar 2022 Reykjavík Viðreisn Framsóknarflokkurinn Borgarstjórn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira