Bakarískeðjan Jói Fel hefur verið tekin til gjaldþrotaskipta eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur samþykkti gjaldþrotabeiðni Lífeyrissjóðs Verslunarmanna í gær. Stundin segir frá .

Sagt var frá því fyrir um mánuði síðan að iðgjöldum vegna launa starfsfólks hafi ekki verið skilað til sjóðsins í yfir ár, þrátt fyrir að vera dregin frá launum þeirra eins og lög gera ráð fyrir.

Í frétt Stundarinnar kemur fram að Jóhannes Felixson, betur þekktur sem Jói Fel, vinni nú að því ásamt fjárfestum að kaupa reksturinn úr þrotabúinu og halda honum áfram.