Stórglæsilegt aukaspyrnumark Guðmundar (myndskeið)

Guðmundur Þórarinsson í leik með íslenska A-landsliðinu í síðasta mánuði.
Guðmundur Þórarinsson í leik með íslenska A-landsliðinu í síðasta mánuði. mbl.is/Kristinn Magnússon

Landsliðsmaðurinn Guðmundur Þórarinsson kom inn á sem varamaður hjá New York City í 1:1 jafntefli gegn Atlanta United í bandarísku MLS-deildinni í knattspyrnu karla í nótt og jafnaði metin á 90. mínútu.

Markið var stórglæsilegt; beint úr aukaspyrnu upp í samskeytin nær, óverjandi fyrir Brad Guzan í marki Atlanta.

Markið má sjá hér:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert