Klopp: „Gæti ekki verið meira sama um hvernig við vinnum leiki“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 19. október 2021 22:46 Jürgen Klopp og Diego Simeone takast í hendur fyrir leik. Eitthvað sem átti eftir að klikka að leik loknum. Nick Potts/PA Images via Getty Images Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, var eðlilega ánægður með 3-2 sigur sinna manna gegn Atlético Madrid í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Hann segir að leikruinn hafi verið erfiður, en að hans menn hafi spilað vel. „
Þetta var erfiður leikur eins og við bjuggumst við. Við vorum furðugóðir í byrjun leiks,“ sagði Klopp í leikslok. „Bjuggumst við við því að þeir yrðu svona varnarsinnaðir? Líklega ekki. Þetta var ekki auðvelt. Við skoruðum tvö frábær mörk og spiluðum svo flottan fótbolta.“ Klopp segir að liðið hafi getað gert ýmislegt til að koma í veg fyrir mökin tvö sem Atlético skoruðu í kvöld. „Staðan var 2-0, en Atlético er nokkuð sama um hvort þeir eru með boltann eða ekki. Við gáfum þeim fyrra markið, en seinna markið, þó að það hafi verið vel spilað þá skildum við eftir of mikið af opnum svæðum. Það var ekki í lagi.“ Þjóðverjinn segir að liðið hafi spilað vel í seinni hálfleik, en að það hafi vissulega hjálpað að vera manni fleiri. „Við spiluðum virkilega vel í seinni hálfleik í erfiðum leik þar sem bæði lið spiluðu af mikilli ákefð. Við fengum víti, og svo var rautt spjald sem auðvitað hjálpaði okkur.“ Heimamenn í Atlético Madrid fengu einnig vítaspyrnu í leiknum, en eftir að hafa farið í skjáinn fræga, ákvað dómari leiksins að taka þann dóm til baka. „Ég sá þetta og okkar víti var víti. Ég held að hitt hafi ekki verið víti, en ég bjóst ekki við því að hann myndi snúa dómnum við. Ég held samt að það hafi verið rétt ákvörðun. Rauða spjaldið var óheppni, en það er klárt rautt spjald. Hann [Griezmann] fer með fótinn í andlitið að Firmino. Þetta getur gerst.“ „Þetta var erfiður leikur, en ef ég á að vera hreinskilinn þá gæti mér ekki verið meira sama um hvernig við vinnum leikina. Á svona kvöldi er mjög ljúft að taka þrjú stig.“ Eftir leikinn strunsaði Diego Simeone, þjálfari Atlétici Madrid, beint inn í klefa án þess að taka í höndina á Klopp, eða nokkrum öðrum. Klopp segir að viðbrögð kollega síns hafi ekki verið honum til framdráttar. „Við viljum ekki sjá svona, en já, það er augljóst að ég vill taka í höndina á honum. Viðbrögði hans, eins og mín, voru ekki alveg nógu góð. Við tökumst í hendur næst þegar við hittumst. Þetta er ekkert mál. Hann var augljóslega reiður, ekki út í mig, heldur út í leikinn,“ sagði Klopp að lokum.
Fótbolti Meistaradeild Evrópu Mest lesið Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Fótbolti McIlroy í baráttunni þrátt fyrir yfirvonandi skilnað Golf Uppgjör: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Körfubolti „Ég táraðist smá“ Sport „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ Körfubolti Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Handbolti „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Körfubolti Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Íslenski boltinn Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Fótbolti Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Enski boltinn Fleiri fréttir Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylkir Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn UEFA setur pressu á City Football Group Fyrirliði 21 árs landsliðs Svía skiptir um landslið Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Þriðji markahæsti landsliðsmaðurinn leggur skóna á hilluna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Allegri afklæddist á hliðarlínunni „Sá að þeim leið aldrei illa“ Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ „Þetta var ótrúlega erfitt“ Vlahovic tryggði Juventus bikarmeistaratitilinn United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð KA sneri taflinu við í seinni hálfleik Sjá meira