Breiðablik mætir Selmu Sól

Bikarmeistarar Breiðabliks mæta Rosenborg í undaúrslitunum.
Bikarmeistarar Breiðabliks mæta Rosenborg í undaúrslitunum. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Breiðablik mætir Selmu Sól Magnúsdóttur og liðsfélögum hennar í Rosenborg í undanúrslitum fyrstu umferðar Meistaradeildar kvenna i knattspyrnu. 

Ef Breiðablik vinnur Rosenborg þá mætir félagið annaðhvort Minsk frá Hvíta-Rússlandi eða Slovácko frá Tékklandi í úrslitaleiknum. 

Fyrsta um­ferðin er leik­in dag­ana 18. og 21. ág­úst í einu af lönd­un­um fjór­um en fé­lög­in eiga að koma sér sam­an um leikstað.

Þann 1. sept­em­ber verður síðan dregið til 2. um­ferðar sem leik­in er tvær síðustu vik­urn­ar í sept­em­ber. Þar er spilað um sæti í riðlakeppni Meist­ara­deild­ar­inn­ar sem hefst 19. októ­ber og er leik­in til 22. des­em­ber.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert