Saka Bandaríkin um að auka spennu í Austur-Evrópu Samúel Karl Ólason skrifar 25. janúar 2022 15:15 Dmitry Peskov, talsmaður forseta Rússlands, er hér til vinstri. Við hlið hans er Sergey Lavrov, utanríkisráðherra, og til hægri er Vladimír Pútin, forseti. EPA/SERGEI CHIRIKOV Ráðamenn í Rússlandi segjast fylgjast náið með og hafa áhyggjur af því að Bandaríkjamenn hafi sett 8.500 hermenn í viðbragðsstöðu vegna Úkraínu-krísunnar. Rússar segjast ekki ætla að gera innrás í Úkraínu en segjast geta framkvæmt ótilgreindar hernaðaraðgerðir verði ekki orðið við kröfum þeirra.
Dmitry Peskov, talsmaður Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, sakaði í dag Bandaríkin um að auka spennu vegna Úkraínu, samkvæmt frétt Reuters. Rússar hafa oft sagt að spennan sé til komin vegna Bandaríkjanna og Atlantshafsbandalagsins en ekki vegna þess að Rússar hafa komið tugum þúsunda hermanna við landamæri Úkraínu á undanförnum vikum. Sjá einnig: Hernaðaruppbygging Rússa heldur áfram Rússar hafa flutt um hundrað þúsund hermenn að landamærum Úkraínu. Þeir krefjast þess að Úkraínu verði meinaður mögulegur aðgangur að NATO í framtíðinni. Þá hafa þeir krafist þess að Atlantshafsbandalagið fjarlægi allar hersveitir og vopn úr Austur-Evrópu. Það á við ríki eins og Pólland, Eystrasaltsríkin, Rúmeníu og Búlgaríu. Forsvarsmenn Atlantshafsbandalagsins hafa sagt að ekki komi til greina að verða við þeim kröfum. Tilkynntu var í gær að hersveitir yrðu settar í viðbragðsstöðu og fleiri herskip og orrustuþotur yrðu sendar til aðildarríkja í Austur-Evrópu. Í Rússlandi er beðið eftir skriflegum svörum við kröfum þeirra. TASS fréttaveitan, sem er í eigu rússneska ríkisins, hefur eftir Peskov að ríkisstjórn Pútíns bíði enn eftir svörum. Næstu skref í deilunni verði ekki ákveðin fyrr en þau hafi borist og búið að fara yfir þau. Eftir að svörin berast stendur til að halda annan fund milli Antony Blinken og Sergey Lavrov, utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Rússlands. Eiga ekki von á innrás á næstu dögum Pólitískir leiðtogar Úkraínu sögðu í dag að þeir ekki eki von á innrás á næstu dögum. Þeir hafa þó sagt að ógnin sé raunveruleg. Oleksii Raznikov, varnarmálaráðherra Úkraínu, sagði á þingi í dag að rússneskir hermenn hefðu ekki myndað þær fylkingar sem þeir myndu gera í aðdraganda innrásar. Fólk ætti ekki að missa svefn yfir mögulegri innrás, né pakka í töskur. Sjá einnig: Vonast eftir því besta en búa sig undir það versta Vólódómír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar slegið á svipaða strengi og sagt yfirvöld hafa stjórn á ástandinu. Rússar gerðu innrás í Úkraínu árið 2014 og innlimuðu Krímskaga. Þá hafa Rússar stutt dyggilega við bakið á aðskilnaðarsinnum í austurhluta Úkraínu með vopnum og hermönnum. Átökin þar eru talin hafa kostað allt að fimmtán þúsund manns lífið í gegnum árin.
Úkraína Rússland Bandaríkin NATO Hernaður Tengdar fréttir Bandaríkjaher í startholunum vegna stöðunnar við Úkraínu Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur sett 8.500 hermenn í viðbragðsstöðu vegna hernaðaruppbyggingar Rússa við landamæri Úkraínu. 24. janúar 2022 23:24 Skipa fjölskyldum sendiráðsstarfsfólks að yfirgefa Úkraínu Bandaríkjamenn hafa fyrirskipað fjölskyldum þeirra sem starfa í sendiráði Bandaríkjanna í Úkraínu að yfirgefa landið. 24. janúar 2022 06:45 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Bein útsending: Forsetaefnin skila inn framboðum sínum í Hörpu Innlent María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent Dregur framboðið til baka Innlent Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Erlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent Niðri fyrir vegna Útlaganna Innlent Leyfislausar tjaldbúðir og sundsprettur eftir lokun Innlent „Óskiljanlegt að menn skuli leggjast svona lágt“ Innlent Fleiri fréttir Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sjá meira
Bandaríkjaher í startholunum vegna stöðunnar við Úkraínu Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur sett 8.500 hermenn í viðbragðsstöðu vegna hernaðaruppbyggingar Rússa við landamæri Úkraínu. 24. janúar 2022 23:24
Skipa fjölskyldum sendiráðsstarfsfólks að yfirgefa Úkraínu Bandaríkjamenn hafa fyrirskipað fjölskyldum þeirra sem starfa í sendiráði Bandaríkjanna í Úkraínu að yfirgefa landið. 24. janúar 2022 06:45