Göngumaður sem um 100 björgunarsveitarmenn leituðu við Móskarðshnjúka fannst rétt fyrir klukkan sjö í kvöld. Hann er nú kominn niður á láglendið.
„Hann var nokkuð sprækur en honum var kalt og hann orðinn orkulítill,“ segir Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, í samtali við mbl.is.
Manninum var gefin næring og hlúð að honum.
Maðurinn fannst á smá hæð og var veður farið að versna á svæðinu. Þá var komið kolniðamyrkur og orðið verulega kalt.