Innlent

Fjölgar um tvo á spítalanum

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
37 liggja inni á Landspítalanum með Covid-19.
37 liggja inni á Landspítalanum með Covid-19. Vísir/Egill

37 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19 og hefur þeim því fjölgað um tvö á milli daga. Starfsmönnum spítalans í einangrun fjölgar nokkuð á milli daga.

Á vef Landspítala segir að líkt og í gær eru þrír á gjörgæslu, allir í öndunarvél.

9.130 sjúklingar eru í Covid-göngudeild spítalans, þar af 3.221 barn. Í gær var staðan sú að 9.345 sjúklingar voru í Covid-göngudeild spítalans, þar af 3.257 börn.

Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 360 innlagnir vegna COVID-19 á Landspítala.

187 starfsmenn Landspítala eru nú einangrun, samanborið við 165 í gær.


Tengdar fréttir

Færri þurfa að leggjast inn vegna veirunnar

Þeim hefur fækkað verulega síðustu daga sem hafa þurft að leggjast inn á Landspítalann vegna kórónuveirunnar. Þá eru veikindi þeirra sem þurft hafa að leggjast inn minni en áður.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×