Skoðar hvort hægt sé að takmarka hvalveiðar Sunna Sæmundsdóttir skrifar 23. maí 2023 12:01 Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra sat fyrir svörum um hvalveiðar á fundi atvinnuveganefndar Alþingis í morgun. Vísir/Vilhelm Matvælaráðherra segir til skoðunar að takmarka hvalveiðar í sumar þrátt fyrir hún telji ekki lagastoð fyrir afturköllun á veiðileyfi. Hollywood-stjarna hvetur fólk til þess að mótmæla veiðunum.
Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, kom fyrir atvinnuveganefnd Alþingis í morgun á opnum fundi um hvalveiðar vegna nýlegrar skýrslu Matvælastofnunar. Svandís hóf fundinn á því að ítreka niðurstöðu skýrslunnar um að veiðarnar uppfylli ekki markmið laga um velferð dýra. „Og þessi skýrsla og þessi myndbönd eru auðvitað sláandi þar sem fram kemur að dauðastríð þeirra sem ekki drepast strax sé ellefu og hálf mínúta að miðgildi og allt upp í tvær klukkustundir. Og meirihluti dýranna sem eru veidd eru kvendýr, þar á meðal mjólkandi kýr ásamt ellefu kálffullum kúm,“ sagði Svandís. Hins vegar sé gilt veiðileyfi fyrir hendi og í útgáfu þess felist stjórnvaldsákvörðun. Uppfylla þurfi ákveðin skilyrði til að hana megi afturkalla. „Annað hvort að ákvörðunin sé ógildanleg, það er að segja að hún sé haldin einhverjum tilteknum annmarka að lögum eða að ákvörðun um afturköllun sé ekki til tjóns fyrir aðila. Hvorugt skilyrða telst uppfyllt í þessu tiltekna tilviki.“ Sumarið 2022 setti matvælaráðherra reglugerð sem veitti Matvælastofnun heimild til að viðhafa reglubundið eftirlit við hvalveiðar. Tilgangur eftirlitsins var að stuðla bættri velferð dýra við hvalveiðar.vísir/Egil Ráðuneytið viðar nú að sér gögnum áður en ákvörðun verður tekin um næsta leyfi. Meðal annars á að kanna efnhagsleg- og umhverfisáhrif veiðanna. Svandís fagnaði mikilli og beittri umræðu - sem hefur náð út fyrir landsteinana. Hollywood-stjarnan Jason Momoa birti í gærkvöldi færslu á Instagram þar sem hann hvetur fólk til að skrifa undir áskorun til matvæla- og forsætisráðherra um að stöðva veiðarnar. Um fjörtíu þúsund manns hafa nú líkað við færsluna og undirskriftirnar eru hátt í sjö þúsund. Þá hafa um fjórtán þúsund skrifað undir aðra sambærilega innlenda áskorun til ráðherra. View this post on Instagram A post shared by Jason Momoa (@prideofgypsies) Nokkur hiti var í nefndarmönnum og nýttu einhverjir tækifærið til að lýsa yfir andstöðu sinni gegn veiðunum. „Ég er raunverulega að reyna að átta mig á því af hverju yfirlýstur og sannreyndur náttúruverndarsinni og dýraverndunarsinni hefur einfaldlega ekki stigið niður fæti og stoppað þetta,“ sagði Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, og spurði ráðherra hvort það væri unnt að takmarka hvalveiðarnar í sumar fyrst ekki væri hægt að stöðva þær. Svandís sagði það til skoðunar. „Við erum að skoða þetta allt, við erum að skoða þetta allt í heild og við þurfum að gæta vel að hverju skrefi.“
Hvalveiðar Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Dýraheilbrigði Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Erlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Innlent „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Innlent Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Halla Hrund áfram efst Innlent Fleiri fréttir „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Forsetaefni takast á um forsetavaldið „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Bein útsending: Bjarkey kynnir lagareldisfrumvarpið Neyðast óvænt til að tæma laugina Bein útsending: Þrjátíu ár af EES-samstarfi Drógu fiskibát sem fékk veiðarfæri í skrúfuna til hafnar Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Stjórn Íslensku óperunnar afar gagnrýnin á frumvarp um Þjóðaróperu Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Bein útsending frá samstöðutónleikum í Háskólabíó í opinni dagskrá Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Nýtt sanngirnisbótafrumvarp gæti komið fram Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Engri kirkju hollt að vera of nálægt ríkinu Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Reynt til þrautar að ná samningum áður en aðgerðir skella á Júróvisíon í skugga stríðsreksturs og sársaukafullar uppsagnir Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Töluverð óvissa um framvindu jarðhræringanna Sjá meira