Borholurnar aftur af stað

Vesturbærinn í Reykjavík verður settur aftur á borholuvatn á morgun.
Vesturbærinn í Reykjavík verður settur aftur á borholuvatn á morgun. mbl.is/Sigurður Bogi

Hitaveita Veitna mun á morgun, þriðjudaginn 20. júlí, breyta afhendingu heits vatns í þeim hverfum Reykjavíkur sem liggja vestan Elliðaár og á Kjalarnesi.

Þau hverfi verða þá aftur sett á vatn úr borholum á jarðhitasvæðum í Reykjavík og Mosfellsbæ.

Í byrjun júní voru þessi hverfi sett á upphitað vatn frá virkjunum ON á Hellisheiði og á Nesjavöllum til þess að létta á vinnslu úr jarðhitasvæðunum. Tilgangurinn var að tryggja sjálfbæran rekstur þeirra um ókomna framtíð og á sama tíma nýta betur framleiðslugetu virkjananna, að því er segir í tilkynningu.

Vatnsskiptaaðgerðin er þannig skipulögð að ekki á að koma til truflana á afhendingu en einhverjir gætu orðið varir við minniháttar truflanir.

Þeir ættu þó ekki að finna mun á vatninu enda ekki marktækur munur á þessum tveimur tegundum heits vatns.

Engar breytingar á hitastigi eða þrýstingi verða í hitaveitunni við skiptin. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert