Samþykkja samruna Kviku og TM

Kvika sameinast TM.
Kvika sameinast TM.

Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt samruna Kviku og TM. Jafnframt tilkynnti Fjármálaeftirlitið Kviku þá niðurstöðu sína að eftirlitið teldi félagið hæft til að fara með eignarhald á virkum eignarhlut í TM tryggingum hf., TM líftryggingum hf. og Íslenskri endurtryggingu hf.

Þetta kemur fram í tilkynningu Kviku til Kauphallarinnar.

Með samruna Kviku og TM verður til stórt fjármálafyrirtæki með efnahagsreikning sem getur þjónað stærri viðskiptavinum en fyrrnefnda fyrirtækið hefur verið í færum til fram til þessa.

Þetta kom fram í samtali ViðskiptaMoggans við Marinó Örn Tryggvason, forstjóra Kviku, í desember síðastliðnum.

Sameiningin feli í sér náttúrulega áhættudreifingu sem muni styðja við hagstæða fjármögnun félagsins til frambúðar.

Lykill fjármögnun hluti af sameiningunni

Stjórn­ir Kviku banka, TM og Lyk­ils fjár­mögn­un­ar samþykktu 25. nóvember að sam­eina fé­lög­in.

Fjallað var um málið á mbl.is.

„Verða fé­lög­in sam­einuð und­ir merkj­um Kviku, en TM mun færa vá­trygg­inga­starf­semi sína í nýtt fé­lag, TM trygg­ing­ar hf., og verður það dótt­ur­fé­lag sam­einaðs fé­lags.

Marinó Örn Tryggva­son verður for­stjóri Kviku og Sig­urður Viðars­son verður for­stjóri TM trygg­inga. Fjár­mála- og rekstr­ar­sviði Kviku verður skipt upp í tvö svið eft­ir samrun­ann; Ragn­ar Páll Dyer mun gegna starfi fram­kvæmda­stjóra fjár­mála­sviðs og Ólöf Jóns­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Lyk­ils, mun hefja störf hjá Kviku og gegna starfi fram­kvæmda­stjóra rekstr­ar- og þró­un­ar­sviðs.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK