Eldur kviknaði í blaðagámi

Lítil hætta stafaði af eldinum en gámurinn stóð einn og …
Lítil hætta stafaði af eldinum en gámurinn stóð einn og sér úti á plani. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Eldur kom upp í blaðagámi við Langholtsskóla um klukkan þrjú í nótt og var slökkviliðið kallað út.

Aðstoðarvarðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir ekki liggja fyrir hver upptök eldsins voru en bætir þó við að lítil hætta hafi stafað af honum. Var eldurinn nánast búinn að lognast út þegar að slökkvilið bar að garði.

Þá stóð gámurinn einn og sér úti á plani og því var lítil hætta á að eldurinn myndi breiða úr sér. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert