Innlent

Lokuðu leik­skólanum í dag vegna stórrar hóp­­sýkingar

Eiður Þór Árnason skrifar
Um áttatíu leikskólapláss eru á Sæborg.
Um áttatíu leikskólapláss eru á Sæborg. Reykjavíkurborg

38 börn og starfsmenn í leikskólanum Sæborg í Reykjavík hafa greinst með Covid-19. Tvær deildir af fjórum hafa verið lokaðar seinustu daga vegna þessa en ákveðið var að loka skólanum alfarið í dag og á morgun eftir að þriðja deildin var send í sóttkví.

„Þetta er stór hluti. Við erum bara að kortleggja málið og fara yfir þetta núna,“ segir Ásta Kristín Svavarsdóttir, leikskólastjóri Sæborgar, í samtali við Vísi. Eru nú flest börn og starfsmenn á tveimur deildum komin í einangrun.

Ákveðið var að loka leikskólanum í tvo daga þar sem ekki er nægt starfsfólk til að manna einu deildina sem er hvorki í einangrun né sóttkví.

„Nær allir sem ég hef heyrt í eru með lítil sem engin einkenni, fólk er ekki alvarlega veikt, hvorki börn né starfsfólk. Það er einn sem var frekar hastarlega veikur í starfsmannahópnum í tvo, þrjá daga en núna er hann allur að koma til,“ segir Ásta.

Fara í sýnatöku um helgina

„Það eina sem maður getur gert er að gera það besta í aðstæðunum og sem betur fer vinna leikskólastjórar vel saman og ég hef fengið rosalega góðan stuðning hjá mínum yfirmönnum. Þetta er óþægileg staða og skrítið að skólinn sé lokaður,“ segir Ásta.

Hún hafi sömuleiðis átt í góðum samskiptum við rakningateymi almannavarna og fundið fyrir stuðningi frá þeim.

Deildin sem lenti í sóttkví í dag fer í sýnatöku á laugardag og því er ekki útilokað að enn eigi eftir að bætast í hóp smitaðra á Sæborg.

Loka hefur þurft fleiri leikskólum á landinu í dag. Í Grindavík voru foreldrar og forráðamenn barna á leikskólanum Laut, öðrum tveggja í bænum, beðnir um að sækja börnin sín vegna þess að starfsmaður hafði greinst smitaður. Leikskólanum verður lokað fram yfir helgi.

Fréttin hefur verið uppfærð.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×