Skoða að bjóða starfsemina á Vífilsstöðum út til einkarekstrar Eiður Þór Árnason skrifar 19. maí 2022 14:59 Á Vífilsstöðum í Garðabæ er öldrunardeild fyrir 42 sjúklinga á þremur hæðum. Aðalbyggingin var tekin í notkun árið 1910. Vísir/Vilhelm Til greina kemur að bjóða starfsemi öldrunardeildar Landspítalans á Vífilsstöðum út til einkarekstrar. Runólfur Pálsson, forstjóri spítalans, segir reksturinn ekki talinn hluta af kjarnastarfsemi spítalans og því hafi verið þreifingar um að finna annan rekstraraðila. „
Ég hef talað fyrir því að við viljum færa einhver verkefni frá spítalanum vegna þess að ég held að það sé öllum ljóst af almennum fréttaflutningi sem stöðugt er af spítalanum að við erum með óhófleg verkefni sem við ráðum illa við með þeim mannafla sem við höfum. Það kemur niður á okkar aðstöðu til að sinna bráðveikum og slösuðum á bráðamóttökunni sem er yfirfull af því að við höfum ekki legurými,“ segir Runólfur í samtali við fréttastofu. Heilbrigðisráðuneytið leiti nú leiða til að færa þá starfsemi sem ekki sé hluti af kjarnastarfsemi spítalans í hendur annarra. Starfsemin á Vífilsstöðum sé eitt að því sem komi þar sterklega til greina en málið er á borði ráðuneytisins. „Málið er ekki í okkar höndum en við bara vitum af því og höfum átt viðræður við heilbrigðisráðuneytið um að þessi starfsemi sé kannski efst á blaði þegar kemur að tilfærslu verkefna,“ segir Runólfur. Hann segist ekki þekkja hver staða málsins er á þessu stigi. Runólfur Pálsson er forstjóri Landspítalans.Vísir/Arnar Tilkynnti starfsmönnum fyrirætlanirnar í gær Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri meðferðarsviðs Landspítala, tilkynnti starfsmönnum Vífilsstaða um fyrirætlanirnar í gær. Þrátt fyrir það segir Runólfur að engar nýjar vendingar séu í málinu. „Við vildum bara hafa vaðið fyrir neðan okkur og kynna þetta fyrir starfsfólkinu þannig að það væri upplýst og það kæmi ekki aftan að neinum.“ Stjórnendur bindi vonir við hægt verði að halda í starfsfólkið og nýta það í önnur verkefni innan spítalans. „Við á Landspítalanum höfum átt erfitt uppdráttar vegna óhóflegra verkefna í langan tíma og ég hef beitt mér fyrir því frá því að ég tók við að við verðum að finna lausn á þessu, vegna þess að það syrtir stöðugt í álinn. Við erum í stórfelldum vandræðum með að sinna bráðveikum sem til okkar leita alla daga, bæði vegna manneklu en líka aðstöðuleysis,“ bætir Runólfur við. Hann sér tækifæri í mögulegri tilfærslu Vífilsstaða og vonast eindregið til að halda starfsfólkinu þar svo hægt sé að nýta það annars staðar á spítalanum.
Landspítalinn Heilbrigðismál Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Garðabær Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Fleiri fréttir Þurftu að réttlæta allt sem þær gerðu í Konukoti Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Sjá meira