Handbolti

43 ára og er enn að loka markinu á stóra sviðinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Katrine Lunde er frábær markvörður og gefur ekkert eftir þótt hún sé komin langt inn á fimmtugsaldurinn.
Katrine Lunde er frábær markvörður og gefur ekkert eftir þótt hún sé komin langt inn á fimmtugsaldurinn. Getty/Dean Mouhtaropoulos

Norski landsliðsmarkvörðurinn Katrine Lunde átti algjöran stórleik í fyrsta leik lokaúrslitanna í norska kvennahandboltanum.

Lunde varði yfir 65 prósent skotanna sem á hana komu og liðið hennar Vipers Kristiansand vann fyrir vikið 32-19 stórsigur á Storhamar í fyrsta leik.

Vipers Kristiansand getur tryggt sér titilinn með sigri á laugardaginn en liðið á síðan eftir að spila til úrslita í Meistaradeildinni í Búdapest í næsta mánuði.

Það þykir magnað afrek hjá Lunde að vera bjóða upp á svona frammistöðu enda orðin 43 ára gömul. Hún er fædd í mars árið 1980.

Lunde er ríkjandi heims- og Evrópumeistari með norska landsliðinu og hefur alls unnið tíu gull á stórmótum með norska landsliðinu.

Vipers Kristiansand hefur unnið fimm titla í röð síðan að Lunde kom til liðsins eftir að hafa spilað í mörg ár í Rússlandi og Ungverjalandi. Vinni liðið á laugardaginn verður það sjötti norski meistaratitillinn í röð.

Katrine Lunde hefur alls orðið tólf sinnum landsmeistari á ferlinum, í Noregi (5), í Danmörku (3) og í Ungverjalandi (4).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×