Valdís hætt í atvinnumennsku: „Þrjú ár af stanslausum sársauka“ Sindri Sverrisson skrifar 7. apríl 2021 12:56 Valdís Þóra Jónsdóttir er hætt sem atvinnukylfingur. LET/Tristan Jones „Vonandi mun ég einn daginn geta spilað golf aftur mér til gamans,“ segir Valdís Þóra Jónsdóttir. Vegna þrálátra og slæmra meiðsla hefur hún ákveðið að hætta sem atvinnukylfingur.
Valdís Þóra lék meðal annars á tveimur risamótum á sínum ferli sem atvinnumaður, á Opna bandaríska árið 2017 og Opna breska árið 2018. Valdís hefur þrívegis orðið Íslandsmeistari í höggleik og einu sinni í holukeppni. Hún lék á LET-mótaröðinni, sterkustu mótaröð Evrópu, árin 2017-2020 og náði á tveimur mótum að lenda í 3. sæti. Nú hefur þessi 31 árs gamla Skagamær hins vegar ákveðið að láta gott heita í atvinnumennskunni. „Það liggja margar ástæður að baki en sú stærsta er að líkaminn þolir ekki mikið meira. Eftir höfðinu dansa limirnir og þeir hafa gert það undanfarin þrjú ár. Þrjú ár af stanslausum sársauka sem ég náði að harka í gegnum vegna keppnisskaps, þrjósku og metnaðar. En nú er mál að linni. Ég hef ákveðið að hlusta á líkamann og segja þetta gott,“ segir Valdís í pistli sem hún birtir á samfélagsmiðlum. „Síðastliðna 4 mánuði hef ég fengið 15 sterasprautur í bakið og búið er að fara inn í taugar og gefa þeim rafstuð en í hvert sinn sem ég byrja að sveifla af fullum krafti aftur hafa verkirnir blossað upp af sama krafti. Síðasta trompið sem við áttum eftir var að brenna taugaenda af, og hefur það verið gert á fjórum taugum en enn eru eftir tvær. Þetta eru mikil inngrip í líkamann, sársaukafull og erfið. Líkamleg og andleg heilsa mín skiptir mig einfaldlega meira máli en íþróttin er farin að gera,“ segir Valdís en pistil hennar má lesa hér að neðan. Thank you pic.twitter.com/9KVoJIvXUB— Valdís Þ. Jónsdóttir (@DaughterOfJon) April 7, 2021
Golf Mest lesið Barnshafandi eftir langt ferli sem tók á andlega Íslenski boltinn Uppgjörið: Álftanes - Keflavík 85-114 | Sjóðheit Keflavíkursókn blés nýliðana burt Körfubolti Kári Vagn náði níu pílna leik og stefnir á Ally Pally Sport Ótrúlegur lækningamáttur í dalnum vekur furðu Íslenski boltinn Skytturnar tylltu sér á toppinn með stæl Enski boltinn Segir viðbrögð fjölmiðla til skammar Enski boltinn Dæmd í bann eftir að ljúga til um krabbamein til að sleppa við bann Sport Einar Árni hættur hjá Hetti Körfubolti Segir að Ten Hag sé búinn að vera Enski boltinn „Mér fannst ódýrt af Arnari að bera þetta saman“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Rory McIlroy fordæmir falsfrétt „Hann hefur sjokkerað allan heiminn“ Fær miklu meira borgað fyrir sigur á Masters í ár en fyrir tveimur árum „Með betri stjórn á tilfinningunum mínum en nokkurn tímann áður“ Scheffler í sérflokki á Masters Ekkert fær Scheffler stöðvað Tiger Woods spilar samhliða áhugamanni eftir erfiðan gærdag Degi þrjú lokið: Scheffler enn á toppnum þrátt fyrir tvöfaldan skolla Scheffler efstur á meðan Woods fellur neðar og neðar Reiddist áhorfendum eftir þrefaldan skolla: „F**k off“ Þrír á toppnum eftir dag tvö Metið innan seilingar hjá Tiger Woods Tiger þarf að spila 23 holur í dag Útsendingin frá Mastersmótinu byrjar 11.45 í dag Danski tvíburinn sló óvænt í gegn fyrir myrkur „Það verður hátíð næstu daga“ Það sem þú þarft að vita fyrir Masters mótið sem byrjar í dag Líklegastur til að vinna en vill frekar vera viðstaddur fæðinguna McIlroy upp með sér vegna orða Tigers Bernard Langer frestar kveðjustundinni á Masters um eitt ár Ofurtölvan hefur litla trú á Rory McIlroy á Mastersmótinu Neitar að gefast upp en bætir líklega ekki við glæsta ferilskrá Tiger setur met ef hann nær niðurskurðinum á Masters Tiger skrúfar fyrir allt kynlíf Fékk aðstoð frá fyrrum þjálfara Tigers en besta ráðið kom frá dótturinni Tiger Woods verður meðal kylfinga á Masters Sjáðu höggin í mögnuðum sigri Scheffler: „Fengi kinnhest frá konunni“ Boðaðir á fund með Sádunum á bakvið LIV-mótaröðina Hefur áhyggjur af því að fólk sé að missa áhugann Sjá meira