Eldræða Jódísar: Þingmenn verði að standa í lappirnar gegn „hryllingi“ á Seyðisfirði Máni Snær Þorláksson skrifar 14. mars 2023 14:38 Jódís Skúladóttir kallar eftir því að þingmenn standi með íbúum Seyðisfjarðar. Vísir/Vilhelm Þingmaður Vinstri grænna flutti eldræðu á Alþingi í dag og sagði öðrum þingmönnum að standa í lappirnar gegn erlendum fjárfestum. Tilefni ræðunnar er áætlað fiskeldi á Seyðisfirði en þingmaðurinn er þaðan. „
Ég er hingað komin, rétt einn sprettinn, til að ávarpa þann hrylling sem er að gerast í mínu sveitarfélagi, það er áform um fiskeldi í Seyðisfirði,“ segir Jódís Skúladóttir, þingmaður Vinstri grænna, í upphafi ræðunnar á Alþingi í dag. Ræðuna flutti Jódís undir liðnum Störf þingsins. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra staðfesti á dögunum tillögu svæðisráðs Austfjarða að strandsvæðisskipulagi fyrir Austfirði. Jódís furðar sig á því að fiskeldi í Seyðisfirði sé enn á áætlun þegar 75% íbúa sveitarfélagsins er á móti því. „Það er með ólíkindum að hvorki stjórnvöld, sveitarfélög eða nokkur geti hlustað á 75% íbúanna sem hafna þessu. Það getur ekki staðist að þessu verði þrýst í gegn að kröfu erlendra fjárfesta. “ Þingmenn verði að standa í lappirnar Jódís gagnrýnir þingmenn fyrir að tala um vandamál þjóðarinnar en á sama tíma séu þeir einungis að hlaupa á eftir kröfu um arðsemi. „Hér koma þingmenn, dag eftir dag, og tala um örmagna þjóð, uppgefin ungmenni í menntaskólum, slæma stöðu geðheilbrigðismála, staðan er sú að við erum öll að hlaupa á eftir einhverri arðsemiskröfu. Það þarf að keyra yfir lýðræðið, það þarf að keyra yfir allt til þess bara að mæta þessari þörf.“ Ræðu Jódísar í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Eldræða Jódísar um fiskeldi í Seyðisfirði Hún biðlar þá til þingmanna Norðausturkjördæmis að standa í lappirnar með vilja íbúa Seyðisfjarðar: „Sameining Múlaþings byggði að því að hvert sveitarfélag fengi að halda sínum séreinkennum. Á Seyðisfirði hefur árum og áratugum saman verið unnið að uppbyggingu menningar, lista, náttúruverndar og svo mörgu öðru. Það er talað um fjölbreytt atvinnulíf, í Seyðisfirði er fiskvinnsla, þar er landbúnaður, það er engin eftirspurn eftir fiskeldi nema frá erlendum fjárfestum og sveitarstjórnarfólk og við hér á þingi verðum að standa í lappirnar til að stoppa þetta.“
Alþingi Fiskeldi Sjókvíaeldi Múlaþing Vinstri græn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira