Frumsýning hjá Haaland á Etihad Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 6. apríl 2021 14:01 Erling Braut Haaland er mættur til Manchester ásamt liðsfélögum sínum. Hávær orðrómur er um að Haaland gæti gengið til lið við Manchester City í sumar sem arftaki Sergio Aguero. getty/Alexandre Simoes Manchester City heldur áfram á braut sinni í leit að fernunni svokölluðu þegar Borussia Dortmund mætir í heimsókn á Etihad leikvanginn í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld. Erling Braut Haaland hefur verið magnaður fyrir Dortmund á tímabilinu, og ýmsar sögusagnir hafa verið í gangi um að næsti viðkomustaður hans verði Manchester City. Haaland hefur, eins og áður segir, farið á kostum með Dortmund síðan hann gekk til liðs við þá frá RB Salzburg í janúar í fyrra. Þessi tvítugi Norðmaður hefur skorað 22 mörk í 21 leik í þýsku deildinni í vetur, ásamt því að skora tíu mörk í sex leikjum í Meistaradeildinni. Hann varð á dögunum fljótasti leikmaður í sögu Meistaradeildarinnar til að skora 20 mörk, og hefur nú skorað í sex leikjum í röð í deild þeirra bestu. Haaland gæti því orðið aðeins fimmti leikmaðurinn til að skora í sjö Meistaradeildarleikjum í röð með marki í kvöld. Klippa: Mörk Erlings Haaland í Meistaradeildinni Manchester City og Dortmund hafa mæst tvisvar áður, í bæði skiptin í riðlakeppni Meistaradeildarinnar tímabilið 2012-2013. Fyrri leikurinn endaði með 1-1 jafntefli á Etihad vellinum, en Dortmund fór með 1-0 sigur í Þýskalandi. Bæði lið hafa átt í erfiðleikum með að komast áfram úr átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Dortmund gerði það síðast tímabilið 2012-2013 þegar þeir fóru alla leið í úrslitaleikinn þar sem þeir þurftu að sætta sig við silfur eftir tap gegn Bayern Munich. Manchester City hefur tapað fjórum af seinustu fimm leikjum sínum í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar og dottið úr keppninni á þessu stigi seinustu þrjú ár samfleytt. Það verður því spennandi að sjá hvort að norski framherjinn geti lagt stein í götu City í vegferð þeirra að fernunni, og um leið heillað stjórnarmenn liðsins enn frekar sem mögulegur arftaki Sergio Aguero. Leikur Manchester City og Dortmund hefst klukkan 19:00 á Stöð 2 Sport 3, en upphitun fyrir Meistaradeildina hefst klukkan 18:15 á Stöð 2 Sport 2. Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Meistaradeild Evrópu Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Enski boltinn Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Enski boltinn Hetja Keflvíkinga hafði aldrei áður skorað svona flautukörfu á ferlinum Körfubolti „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Segir „mjög líklegt“ að Guðlaug Edda komist á ÓL í París í sumar Sport Lehmann keypti „Invincibles“ nafnið eftir að Arsenal sofnaði á verðinum Enski boltinn HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Handbolti Markaveisla hjá Chelsea á móti nágrönnum sínum Enski boltinn Sú markahæsta með tár á hvarmi er hún tilkynnti brotthvarf sitt frá Chelsea Enski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: AC Milan - Genoa | Verður Albert í markaskónum? Í beinni: KA-KR | Tvo lið í brasi mætast Birkir skoraði fyrir Brescia Í beinni: Liverpool - Tottenham | Næstsíðasti heimaleikur Klopp Katla tryggði Kristianstad sigur Markaveisla hjá Chelsea á móti nágrönnum sínum Andri Lucas skoraði og Andri Fannar fagnaði sigri á toppliðinu PSV Eindhoven hollenskur meistari í fyrsta sinn í sex ár Lehmann keypti „Invincibles“ nafnið eftir að Arsenal sofnaði á verðinum Sjáðu Andra Rúnar opna reikninginn og mörkin sem færðu FH sigur Messi með ótrúlegt stoðsendingmet í MLS deildinni í nótt Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Segir að móðurhlutverkið hafi gert sig að betri leikmanni Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Sú markahæsta með tár á hvarmi er hún tilkynnti brotthvarf sitt frá Chelsea Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Girona í fyrsta sinn í Meistaradeild Evrópu og tryggði Real í leiðinni titilinn Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar „Lítur ekki vel út með Elmar, ég er hræddur um að þetta sé svipað og hjá Eiði“ Real Madrid náði fjórtán stiga forskoti á toppnum Kane skoraði en Bayern tapaði Newcastle fór illa með Jóa Berg og félaga á Turf Moor Uppgjörið: FH - Vestri 3-2 | FH kom til baka og vann fjórða leikinn í röð Eyjamenn byrja fótboltasumarið ekki vel Kristín Dís og Þórdís fögnuðu sigri en það gekk illa hjá Halmstad strákunum Diljá og félagar töpuðu toppslagnum á heimavelli Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Ipswich Town aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir 22 ára fjarveru Þórir bæði með mark og stoðsendingu Sjá meira
Erling Braut Haaland hefur verið magnaður fyrir Dortmund á tímabilinu, og ýmsar sögusagnir hafa verið í gangi um að næsti viðkomustaður hans verði Manchester City. Haaland hefur, eins og áður segir, farið á kostum með Dortmund síðan hann gekk til liðs við þá frá RB Salzburg í janúar í fyrra. Þessi tvítugi Norðmaður hefur skorað 22 mörk í 21 leik í þýsku deildinni í vetur, ásamt því að skora tíu mörk í sex leikjum í Meistaradeildinni. Hann varð á dögunum fljótasti leikmaður í sögu Meistaradeildarinnar til að skora 20 mörk, og hefur nú skorað í sex leikjum í röð í deild þeirra bestu. Haaland gæti því orðið aðeins fimmti leikmaðurinn til að skora í sjö Meistaradeildarleikjum í röð með marki í kvöld. Klippa: Mörk Erlings Haaland í Meistaradeildinni Manchester City og Dortmund hafa mæst tvisvar áður, í bæði skiptin í riðlakeppni Meistaradeildarinnar tímabilið 2012-2013. Fyrri leikurinn endaði með 1-1 jafntefli á Etihad vellinum, en Dortmund fór með 1-0 sigur í Þýskalandi. Bæði lið hafa átt í erfiðleikum með að komast áfram úr átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Dortmund gerði það síðast tímabilið 2012-2013 þegar þeir fóru alla leið í úrslitaleikinn þar sem þeir þurftu að sætta sig við silfur eftir tap gegn Bayern Munich. Manchester City hefur tapað fjórum af seinustu fimm leikjum sínum í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar og dottið úr keppninni á þessu stigi seinustu þrjú ár samfleytt. Það verður því spennandi að sjá hvort að norski framherjinn geti lagt stein í götu City í vegferð þeirra að fernunni, og um leið heillað stjórnarmenn liðsins enn frekar sem mögulegur arftaki Sergio Aguero. Leikur Manchester City og Dortmund hefst klukkan 19:00 á Stöð 2 Sport 3, en upphitun fyrir Meistaradeildina hefst klukkan 18:15 á Stöð 2 Sport 2. Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Enski boltinn Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Enski boltinn Hetja Keflvíkinga hafði aldrei áður skorað svona flautukörfu á ferlinum Körfubolti „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Segir „mjög líklegt“ að Guðlaug Edda komist á ÓL í París í sumar Sport Lehmann keypti „Invincibles“ nafnið eftir að Arsenal sofnaði á verðinum Enski boltinn HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Handbolti Markaveisla hjá Chelsea á móti nágrönnum sínum Enski boltinn Sú markahæsta með tár á hvarmi er hún tilkynnti brotthvarf sitt frá Chelsea Enski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: AC Milan - Genoa | Verður Albert í markaskónum? Í beinni: KA-KR | Tvo lið í brasi mætast Birkir skoraði fyrir Brescia Í beinni: Liverpool - Tottenham | Næstsíðasti heimaleikur Klopp Katla tryggði Kristianstad sigur Markaveisla hjá Chelsea á móti nágrönnum sínum Andri Lucas skoraði og Andri Fannar fagnaði sigri á toppliðinu PSV Eindhoven hollenskur meistari í fyrsta sinn í sex ár Lehmann keypti „Invincibles“ nafnið eftir að Arsenal sofnaði á verðinum Sjáðu Andra Rúnar opna reikninginn og mörkin sem færðu FH sigur Messi með ótrúlegt stoðsendingmet í MLS deildinni í nótt Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Segir að móðurhlutverkið hafi gert sig að betri leikmanni Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Sú markahæsta með tár á hvarmi er hún tilkynnti brotthvarf sitt frá Chelsea Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Girona í fyrsta sinn í Meistaradeild Evrópu og tryggði Real í leiðinni titilinn Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar „Lítur ekki vel út með Elmar, ég er hræddur um að þetta sé svipað og hjá Eiði“ Real Madrid náði fjórtán stiga forskoti á toppnum Kane skoraði en Bayern tapaði Newcastle fór illa með Jóa Berg og félaga á Turf Moor Uppgjörið: FH - Vestri 3-2 | FH kom til baka og vann fjórða leikinn í röð Eyjamenn byrja fótboltasumarið ekki vel Kristín Dís og Þórdís fögnuðu sigri en það gekk illa hjá Halmstad strákunum Diljá og félagar töpuðu toppslagnum á heimavelli Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Ipswich Town aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir 22 ára fjarveru Þórir bæði með mark og stoðsendingu Sjá meira