Nær öll nöfn þurrkuð út úr framburði Maxwell um Epstein Kjartan Kjartansson skrifar 22. október 2020 16:47 Maxwell á mynd með Epstein á veggspjaldi sem bandarískir saksóknarar sýndu þegar þeir lögðu fram ákærur á hendur henni í sumar. AP/John Minchillo
Búið var að má út nær öll nöfn úr framburði Ghislaine Maxwell, aðstoðarkonu og fyrrverandi kærustu Jeffreys Epstein, þegar hann var gerður opinber í dag. Maxwell hafnaði því að hafa hjálpað Epstein og Andrési Bretaprins að finna hjásvæfur undir lögaldri. Svæðisdómari í Bandaríkjunum úrskurðaði að birta mætti vitnisburð Maxwell þegar hún var yfirheyrð árið 2016. Hann var gerður opinber í dag en búið var að strika yfir nær öll nöfn nema Epstein og Andrésar prins. Maxwell sótti það fast að koma í veg fyrir að framburður hennar yrði gerður opinber. Maxwell er ákærð fyrir að hafa hjálpað Epstein að finna og búa ungar stúlkur, allt niður í fjórtán ára gamlar, undir að taka þátt í ólöglegum kynlífsathöfnum sem hún hafi sjálf stundum tekið þátt í. Hún er einnig sökuð um meinsæri í framburði sínum í einkamáli sem kona sem segist hafa verið fórnarlamb Epstein höfðaði gegn henni. Hún neitar sök en hefur verið í varðhaldi frá því í júlí. Epstein svipti sig lífi í fangelsi í New York í fyrra þegar hann var ákærður fyrir mansal og misnotkun. Hafnaði Maxwell því eiðsvarin fyrir fjórum árum að hafa orðið vitni að „óviðeigandi athöfnum með fólki undir lögaldri“. Sakaði hún Viriginu Giuffre, konuna sem sakaði Epstein um að misnota sig með aðstoð Maxwell þegar hún var táningur, um að ljúga upp á sig. „Ég hef aldrei nokkurn tímann á nokkurri stundu tekið þátt í neinu með Virginiu og Jeffrey. Svo þess sé getið þá er hún alger fullkominn lygari,“ sagði Maxwell í framburði sínu. Vék hún sér ítrekað undan því að gefa skýr svör um kynferðisleg athæfi Epstein og samskipti við Giuffre og aðrar ungar konur eða unglinga. David Boies og Sigrid McCawley, lögmenn Giuffre fögnuðu birtingu framburðar Maxwell í dag og fullyrtu að brátt yrði ljóst hvers vegna hún og aðrir sem hafi liðkað fyrir glæpum Epstein hafi barist svo hart fyrir því að halda framburðinum leyndum, að því er segir í frétt New York Times.
Mál Jeffrey Epstein Bandaríkin Mál Andrésar prins Tengdar fréttir Vitnisburður Ghislaine Maxwell gerður opinber Áfrýjunardómstóll í New York-ríki telur almenning eiga rétt á því að vitnisburður Ghislaine Maxell, samverkakonu og fyrrverandi kærustu auðkýfingsins Jeffrey Epstein, verði gerður opinber. 19. október 2020 22:06 Reyna að koma í veg fyrir opinberun gagna í gömlu máli gegn Epstein Lögmenn bresku athafnakonunnar Ghislaine Maxwell, sem hefur verið ákærð fyrir að aðstoða barnaníðinginn Jeffrey Epstein við mansal, segja ekki hægt að opinbera það sem hún sagði í vitnaleiðslu árið 2016. 21. ágúst 2020 08:29 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stutt í næsta gos komi til gosloka Innlent Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent „Það er hart sótt að okkar fólki“ Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Vilja endurupptöku í máli Weinstein Erlent Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Innlent Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Vill hinn almenna launamann á þing Innlent Sinueldur í Munaðarneslandi Innlent Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Innlent Fleiri fréttir Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Sjá meira
Vitnisburður Ghislaine Maxwell gerður opinber Áfrýjunardómstóll í New York-ríki telur almenning eiga rétt á því að vitnisburður Ghislaine Maxell, samverkakonu og fyrrverandi kærustu auðkýfingsins Jeffrey Epstein, verði gerður opinber. 19. október 2020 22:06
Reyna að koma í veg fyrir opinberun gagna í gömlu máli gegn Epstein Lögmenn bresku athafnakonunnar Ghislaine Maxwell, sem hefur verið ákærð fyrir að aðstoða barnaníðinginn Jeffrey Epstein við mansal, segja ekki hægt að opinbera það sem hún sagði í vitnaleiðslu árið 2016. 21. ágúst 2020 08:29