Heimamenn í 16-liða úrslit eftir fyrsta markaleik Afríkumótsins Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 13. janúar 2022 17:54 Vincent Aboubakar skoraði tvö mörk fyrir heimamenn og er nú kominn með fjögur mörk í fyrstu tveimur leikjum mótsins. Ulrik Pedersen/NurPhoto via Getty Images Kamerún vann öruggan 4-1 sigur gegn Eþíópíu er liðin mættust á Afríkumótinu í fótbolta í dag. Þetta var í fyrsta skipti á mótinu sem leikur vinnst með meira en eins marks mun.
Fyrir leik Kamerún og Eþíópíu höfðu 12 leikir farið fram á Afríkumótinu. Níu þeirra enduðu 1-0, tveir enduðu með markalausu jafntefli og heimamenn í Kamerún unnu opnunarleikinn gegn Búrkina Fasó 2-1. Fyrstu mínútur leiksins í dag voru heldur betur fjörugar, en eftir aðeins átta mínútna leik var búið að skora tvö mörk og dómari leiksins var búinn að veifa gula spjaldinu tvisvar. Dawa Hotessa Dukele kom Eþíópíu yfir strax á fjórðu mínútu áður en Karl Toko Ekambi jafnaði metin með skalla fjórum mínútum síðar. Í millitíðinni náðu Martin Hongla og Eric Maxim Choupo-Moting sér í gult spjald í liði heimamanna. Ekki var skorað meira í fyrri hálfleik, en Vincent Aboubakar kom heimamönnum í 2-1 á 53. mínútu. Hann var svo aftur á ferðinni tveimur mínútum síðar þegar hann breytti stöðunni í 3-1. Karl Toko Ekambi skoraði annað mark sitt og fjórða mark Kamerún á 67. mínútu og tryggði heimamönnum þar með öruggan 4-1 sigur. Kamerún er komið upp úr A-riðli eftir sigur dagsins, en liðið er með sex stig eftir tvo leiki. Eþíópía er hins vegar enn án stiga og þarf á kraftaverki að halda til að fara áfram.
Afríkukeppnin í fótbolta Mest lesið Leik lokið: Grindavík - Tindastóll 91-89 | Íslandsmeisturunum sópað úr leik í Smáranum Körfubolti Í beinni: Keflavík - Álftanes | Sleppa svanirnir lifandi úr sláturhúsinu? Körfubolti Nýtt merki Þróttar komið á búninginn Íslenski boltinn Enginn Viktor Gísli en Þorsteinn Leó í hópnum Sport Booker um sparkið í stellið: „Partur af körfuboltanum en þetta var allt of mikið“ Körfubolti Leik lokið: Stjarnan - Valur 1-0 | Stjörnumenn komnir á blað Íslenski boltinn Svona var blaðamannafundur Snorra Steins Handbolti „Með því glórulausasta sem ég hef séð“ Körfubolti Fékk ellefu leikja bann fyrir geislann úr heiðursstúkunni Fótbolti Gunnhildur Yrsa og Erin eiga von á barni Íslenski boltinn Fleiri fréttir Martínez missir af fyrri undanúrslitaleiknum vegna leikbanns Í beinni: Stjarnan - Valur | Pressa á báðum liðum Albert komst ekki á blað gegn Lazio Íslandsmeistararnir sóttu bakvörð til Bandaríkjanna Gunnhildur Yrsa og Erin eiga von á barni Nýtt merki Þróttar komið á búninginn Xabi Alonso tók metið af Conte Sería A örugg með fimm Meistaradeildarsæti Besta-spáin 2024: Brakar í heila prófessorsins Nagelsmann framlengir samning sinn við þýska landsliðið Besta-spáin 2024: Nálgast núllpunktinn á ný Hafi ekki séð styrkleika sína nægilega vel Segir að stressið sé að fara með leikmenn Liverpool Fékk ellefu leikja bann fyrir geislann úr heiðursstúkunni Fékk tvö gul spjöld en slapp samt við rautt spjald Vikan varð enn verri fyrir Barcelona: Refsað fyrir nasistakveðjur og fordóma Dagný ánægð að vera mætt aftur til æfinga Þjálfari Hákon Arnars: „Áttum skilið að fara áfram“ „Þurfum á öllum að halda fyrir loka áhlaup í deildinni“ Ósáttur með dómara leiksins: „Eins og að spila gegn fjórtán mönnum“ Rómverjar svífa um á bleiku skýi De Rossi Liverpool úr leik þrátt fyrir sigur á Ítalíu Leverkusen neitar að tapa Hákon Arnar lagði upp þegar Lille féll úr leik eftir vítaspyrnukeppni Markadrottningin mun ná þrettán árum hjá franska félaginu Hjartað var ekki vandamálið þegar Roma maðurinn hneig niður Slakt gengi City, Arsenal og Liverpool í Evrópu slæmar fréttir fyrir United Sjáðu ótrúlega vítakeppni gærkvöldsins: „Vá hvað þetta var skrýtið“ Neville orðlaus: „Var þetta gert opinbert á sínum tíma?“ Besta-spáin 2024: Svífa áfram á bleika skýinu Sjá meira
Leik lokið: Grindavík - Tindastóll 91-89 | Íslandsmeisturunum sópað úr leik í Smáranum Körfubolti
Leik lokið: Grindavík - Tindastóll 91-89 | Íslandsmeisturunum sópað úr leik í Smáranum Körfubolti