Thunberg fær að stefna sænska ríkinu fyrir seinagang Kjartan Kjartansson skrifar 21. mars 2023 14:34 Loftslagsaðgerðasinninn Greta Thunberg heldur á spjaldi sem á stendur „Nú stefnum við ríkinu“ á mótmælum Aurora í Stokkhólmi í nóvember. AP/Christine Ohlsson/TT Héraðsdómstóll í Svíþjóð gaf Gretu Thunberg og hundruð umhverfissinnum grænt ljós á að stefna sænska ríkinu vegna þess sem þau telja ófullnægjandi loftslagsaðgerðir þess. Krafa þeirra er að Svíar dragi saman losun sína um milljónir tonna.
Aurora, samtök um sex hundruð ungra loftslagsaðgerðasinna, stefndi sænska ríkinu og krafðist þess að það gerði meira til þess að takmarka hlýnun jarðar í nóvember. Þau vilja að Svíþjóð dragi úr losun um að minnsta kosti 6,5 til 9,4 milljónir tonna koltvísýrings á ári frá árinu 2019. Byggðu samtökin á því að það væri brot á mannréttindasáttmála Evrópu ef stjórnvöld gripu ekki til fullnægjandi aðgerða gegn loftslagsvánni. Þau saka sænsk stjórnvöld um að líta ekki á loftslagsvandann sem aðsteðjandi vanda. Dómstóll í Nacka í Stokkhólmi komst að þeirri niðurstöðu í dag að mál samtakanna gæti haldið áfram eftir að þau breyttu kröfugerð sinni, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Sænsk stjórnvöld hafa nú þrjá mánuði til þess að bregðast við stefnunni áður en málið verður tekið fyrir. Ekki liggur fyrir hvenær það gæti orðið. Loftslagsnefnd Sameinuðu þjóðanna birti viðamikla samantektarskýrslu um stöðuna í loftslagsmálum í gær. Þar kom meðal annars fram að útlit væri fyrir að mannkynið fari fram úr markmiði sínu um að takmarka hlýnun við 1,5 gráðu strax í byrjun næsta áratugs. Sé ætlunin að ná því markmiði þurfi heimsbyggðina að draga úr losun um sextíu prósent miðað við árið 2019. Aðgerðasinnum hefur orðið ágegnt fyrir dómstólum í nokkrum löndum á undanförnum árum. Þannig skikkaði þýskur dómstóll þarlend stjórnvöld til þess að herða loftslagsmarkmið sín til þess að leggja ekki óþarfa byrðar á ungt fólk árið 2021. Stjórnvöld brugðust við með því að stefna að kolefnishlutleysi fimm árum fyrr en áður og setja sér metnaðarfyllri markmið á þeirri vegferð, að sögn AP-fréttastofunnar.
Loftslagsmál Svíþjóð Tengdar fréttir Þarf hraðan samdrátt til að aftengja loftslagstímasprengju Mannkynið þarf að draga úr losun sinni á gróðurhúsalofttegundum um meira en helming fyrir árið 2035 ef það ætlar sér að takmarka hnattræna hlýnun við eina og hálfa gráðu á þessari öld. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna líkir loftslagsvandanum við tifandi tímasprengju. 20. mars 2023 14:24 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Fleiri fréttir Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Sjá meira
Þarf hraðan samdrátt til að aftengja loftslagstímasprengju Mannkynið þarf að draga úr losun sinni á gróðurhúsalofttegundum um meira en helming fyrir árið 2035 ef það ætlar sér að takmarka hnattræna hlýnun við eina og hálfa gráðu á þessari öld. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna líkir loftslagsvandanum við tifandi tímasprengju. 20. mars 2023 14:24