Fylgstu með lægðinni ganga yfir landið

Skjáskot af Windy.com.
Skjáskot af Windy.com.

Lægð vestur af Íslandi sem færir sig hægt til austurs veldur suðvestan hvassviðri og stormi á landinu í dag með tilheyrandi gulum viðvörunum.

Hægt er að fylgjast með lægðinni ganga yfir landið á vefnum Windy


Á höfuðborgarsvæðinu tók gul viðvörun gildi klukkan 10.

Vindhraðinn nær hámarki síðdegis en búast má við 15-23 metrum á sekúndu víðast hvar en hann verður heldur hægari Austanlands.

Seint í kvöld dregur smám saman úr vindi norðvestan til og í nótt og á morgun dregur frekar úr vindi annars staðar. Veðurviðvaranir á Suður- og Austurlandi falla úr gildi síðdegis á morgun.

Veðurvefur mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert