Gnabry greindist með veiruna og missir af leiknum gegn PSG annað kvöld Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 6. apríl 2021 22:31 Gnabry greindist með Covid-19 og missir af leik Bayern og PSG annað kvöld. EPA-EFE/MATTHIAS BALK Evrópumeistarar Bayern München hafa orðið fyrir öðru áfalli fyrir fyrri leik liðsins gegn Paris Saint-Germain í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Fyrir ekki svo löngu meiddist pólski framherjinn Robert Lewandowski og var í kjölfarið staðfest að hann myndi missa af báðum leikjunum gegn PSG. Nú hefur Serge Gnabry greinst með kórónuveiruna og ljóst er að hann missir allavega af fyrri leik liðanna sem fram fer á morgun. Þessi 25 ára gamli vængmaður var ekki með Bæjurum á æfingu í dag, þriðjudag, og hefur nú fengist staðfest að um Covid-19 sé að ræða. Gnabry greindist með veiruna í október á síðasta ári en fimm dögum síðar kom í ljós að um gallað próf hefði verið að ræða. BREAKING: Bayern Munich confirm Serge Gnabry has tested positive for COVID-19.They play PSG in their Champions League quarterfinal on Wednesday. pic.twitter.com/09Bf8T6EV9— B/R Football (@brfootball) April 6, 2021 Bæjarar halda eflaust enn í vonina að það sama sé upp á teningnum nú og Gnabry nái allavega síðari leik liðanna sem fram fer í næstu viku. Gnabry var frábær á síðustu leiktíð er Bayern varð Þýskalands- og Evrópumeistari. Hann hefur verið aðeins rólegri á þessari leiktíð en samt skorað níu mörk í 23 leikjum í þýsku úrvalsdeildinni ásamt því að leggja upp þrjú mörk til viðbótar. Þá hefur hann aðeins lagt upp eitt mark í sex leikjum í Meistaradeildinni til þessa. Leikur Bayern Munchen og PSG hefst klukkan 19:00 annað kvöld og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 3. Á sama tíma hefst leikur Chelsea og Porto sem verður sýndur á Stöð 2 Sport 2. Upphitun fyrir leiki kvöldsins hefst klukkan 18:15 á Stöð 2 Sport 2 og þeir verða svo gerðir upp í Meistaradeildarmörkunum klukkan 21:00. Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport Erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Fótbolti Meistaradeild Evrópu Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Barnshafandi eftir langt ferli sem tók á andlega Íslenski boltinn Einar Árni hættur hjá Hetti Körfubolti Dæmd í bann eftir að ljúga til um krabbamein til að sleppa við bann Sport Segir að Ten Hag sé búinn að vera Enski boltinn Losnar stjarna Aþenu úr frystiklefa Brynjars Karls? Körfubolti Forest vill hljóðupptöku dómaraherbergins frá leiknum gegn Everton Enski boltinn Viðar Örn: Stoltur af liðinu fyrir að skilja allt eftir á gólfinu Körfubolti „Erfitt að vinna þá þrisvar sinnum í röð“ Körfubolti „Karakter í mínum stelpum, þær gáfust aldrei upp“ Íslenski boltinn Aþena er komið í úrslitaeinvígi um sæti í Subway-deild kvenna Körfubolti Fleiri fréttir Barnshafandi eftir langt ferli sem tók á andlega Segir að Ten Hag sé búinn að vera Forest vill hljóðupptöku dómaraherbergins frá leiknum gegn Everton „Karakter í mínum stelpum, þær gáfust aldrei upp“ „Þetta fór svolítið mikið yfir á þeirra forsendur“ Uppgjörið: Fylkir - Þróttur 1-1 | Nýliðarnir björguðu stigi undir lokin Inter Ítalíumeistari eftir sigur á nágrönnum sínum í AC Milan „Sé okkur ekkert þurfa að elta þær“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-0 | Öruggt í fyrsta heimaleik nýja þjálfarans Uppgjör, viðtöl og myndir: Stjarnan - Víkingur 1-2 | Nýliðarnir byrja á sigri Glódís Perla og stöllur enn taplausar á toppnum Uppgjör og viðtöl: Tindastóll - FH 0-1 | Hafnfirðingar byrja á sigri Bologna styrkti stöðu sína í fjórða sæti Ólafur frá næstu vikurnar Á barmi gjaldþrots og Ásdís gæti misst fríar máltíðir Var sagður taka við Liverpool en hefur rætt við West Ham Gæti krafist þess að El Clásico verði endurtekinn vegna draugamarks Helena skiptir um lið í fyrstu umferð „Maður vill ekki fara að vorkenna þeim“ „Kem því ekki í orð hversu léleg frammistaðan var“ Sjáðu sýningu Amöndu gegn Akureyringum Finnur Arnar fyrir pressunni? „Þjálfari félags sem svífst einskis til að ná árangri“ Sjáðu mörkin úr stórleiknum, öðrum stórsigri ÍA í röð og sögulegum sigri Vestra Hjólaði alla leið frá Mongólíu til að sjá United spila Antony gagnrýndur fyrir fagnið Xavi aftur brjálaður: „Þetta er til skammar og við ætlum ekki að þegja“ „Úrslitin kostuðu Ten Hag starfið“ Ratcliffe hljóp maraþon og dreif sig svo á Wembley Ásaka dómara um óheilindi og hlutdrægni „Hefði hann klippt táneglurnar værum við ekki að ræða þessa vítaspyrnukeppni“ Sjá meira
Fyrir ekki svo löngu meiddist pólski framherjinn Robert Lewandowski og var í kjölfarið staðfest að hann myndi missa af báðum leikjunum gegn PSG. Nú hefur Serge Gnabry greinst með kórónuveiruna og ljóst er að hann missir allavega af fyrri leik liðanna sem fram fer á morgun. Þessi 25 ára gamli vængmaður var ekki með Bæjurum á æfingu í dag, þriðjudag, og hefur nú fengist staðfest að um Covid-19 sé að ræða. Gnabry greindist með veiruna í október á síðasta ári en fimm dögum síðar kom í ljós að um gallað próf hefði verið að ræða. BREAKING: Bayern Munich confirm Serge Gnabry has tested positive for COVID-19.They play PSG in their Champions League quarterfinal on Wednesday. pic.twitter.com/09Bf8T6EV9— B/R Football (@brfootball) April 6, 2021 Bæjarar halda eflaust enn í vonina að það sama sé upp á teningnum nú og Gnabry nái allavega síðari leik liðanna sem fram fer í næstu viku. Gnabry var frábær á síðustu leiktíð er Bayern varð Þýskalands- og Evrópumeistari. Hann hefur verið aðeins rólegri á þessari leiktíð en samt skorað níu mörk í 23 leikjum í þýsku úrvalsdeildinni ásamt því að leggja upp þrjú mörk til viðbótar. Þá hefur hann aðeins lagt upp eitt mark í sex leikjum í Meistaradeildinni til þessa. Leikur Bayern Munchen og PSG hefst klukkan 19:00 annað kvöld og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 3. Á sama tíma hefst leikur Chelsea og Porto sem verður sýndur á Stöð 2 Sport 2. Upphitun fyrir leiki kvöldsins hefst klukkan 18:15 á Stöð 2 Sport 2 og þeir verða svo gerðir upp í Meistaradeildarmörkunum klukkan 21:00. Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport Erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport Erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Fótbolti Meistaradeild Evrópu Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Barnshafandi eftir langt ferli sem tók á andlega Íslenski boltinn Einar Árni hættur hjá Hetti Körfubolti Dæmd í bann eftir að ljúga til um krabbamein til að sleppa við bann Sport Segir að Ten Hag sé búinn að vera Enski boltinn Losnar stjarna Aþenu úr frystiklefa Brynjars Karls? Körfubolti Forest vill hljóðupptöku dómaraherbergins frá leiknum gegn Everton Enski boltinn Viðar Örn: Stoltur af liðinu fyrir að skilja allt eftir á gólfinu Körfubolti „Erfitt að vinna þá þrisvar sinnum í röð“ Körfubolti „Karakter í mínum stelpum, þær gáfust aldrei upp“ Íslenski boltinn Aþena er komið í úrslitaeinvígi um sæti í Subway-deild kvenna Körfubolti Fleiri fréttir Barnshafandi eftir langt ferli sem tók á andlega Segir að Ten Hag sé búinn að vera Forest vill hljóðupptöku dómaraherbergins frá leiknum gegn Everton „Karakter í mínum stelpum, þær gáfust aldrei upp“ „Þetta fór svolítið mikið yfir á þeirra forsendur“ Uppgjörið: Fylkir - Þróttur 1-1 | Nýliðarnir björguðu stigi undir lokin Inter Ítalíumeistari eftir sigur á nágrönnum sínum í AC Milan „Sé okkur ekkert þurfa að elta þær“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-0 | Öruggt í fyrsta heimaleik nýja þjálfarans Uppgjör, viðtöl og myndir: Stjarnan - Víkingur 1-2 | Nýliðarnir byrja á sigri Glódís Perla og stöllur enn taplausar á toppnum Uppgjör og viðtöl: Tindastóll - FH 0-1 | Hafnfirðingar byrja á sigri Bologna styrkti stöðu sína í fjórða sæti Ólafur frá næstu vikurnar Á barmi gjaldþrots og Ásdís gæti misst fríar máltíðir Var sagður taka við Liverpool en hefur rætt við West Ham Gæti krafist þess að El Clásico verði endurtekinn vegna draugamarks Helena skiptir um lið í fyrstu umferð „Maður vill ekki fara að vorkenna þeim“ „Kem því ekki í orð hversu léleg frammistaðan var“ Sjáðu sýningu Amöndu gegn Akureyringum Finnur Arnar fyrir pressunni? „Þjálfari félags sem svífst einskis til að ná árangri“ Sjáðu mörkin úr stórleiknum, öðrum stórsigri ÍA í röð og sögulegum sigri Vestra Hjólaði alla leið frá Mongólíu til að sjá United spila Antony gagnrýndur fyrir fagnið Xavi aftur brjálaður: „Þetta er til skammar og við ætlum ekki að þegja“ „Úrslitin kostuðu Ten Hag starfið“ Ratcliffe hljóp maraþon og dreif sig svo á Wembley Ásaka dómara um óheilindi og hlutdrægni „Hefði hann klippt táneglurnar værum við ekki að ræða þessa vítaspyrnukeppni“ Sjá meira