Lagði upp mark í bikarsigri

Aron Einar Gunnarsson var í eldlínunni í Katar í dag.
Aron Einar Gunnarsson var í eldlínunni í Katar í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Aron Einar Gunnarsson lagði upp annað mark Al-Arabi þegar liðið vann 4:1-útisigur gegn Al Sailya í átta liða úrslitum katörsku krónprinsbikarkeppninnar í knattspyrnu í dag.

Staðan að loknum fyrri hálfleik var 1:1 en Youssef Msakni skoraði tvívegis fyrir Al-Arabi í síðari hálfleik og Mohamed Salah bætti við marki til viðbótar.

Aron Einar lék fyrstu 80 mínútur leiksins áður en honum var skipt af velli í stöðunni 4:1.

Heimir Hallgrímsson er þjálfari Al-Arabi og Freyr Alexandersson er aðstoðarþjálfari liðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert