Tillaga um sameiningu Ásahrepps, Rangárþings ytra, Rangárþings eystra, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps hefur verið samþykkt í Skaftárhreppi.
Samkvæmt kosningu í Ásahreppi var tillagan hinsvegar felld með miklum meirihluta.
Greidd atkvæði í Skaftárhreppi voru 277 en 370 eru á kjörskrá í Skaftárhreppi og var kjörsókn því 75%.
202 greiddu atkvæði með sameiningunni eða 74,8% af greiddum atkvæðum og 68 á móti eða 25,2% af greiddum atkvæðum.
Auð atkvæði voru 4 og ógild atkvæði voru 3