Rússar safna í nýjan herafla á Krímskaga Heimir Már Pétursson skrifar 26. janúar 2023 19:21 Kona gengur framhjá sprengjugíg í bænum Hlevakha í Kænugarðshéraði í dag. AP/Roman Hrytsyna Rússar gerðu stórfelldar loftárásir á borgir og raforkuinnviði í Úkraínu í morgun. Þeir segja ákvörðun Vesturlanda um að senda skriðdreka til landsins marka beina þátttöku vestrænna ríkja í vörnum Úkraínu og ögrun við öryggi Rússlands.
Á sama tíma og þúsundir rússneskra hermanna stráfalla í suður- og austurhluta Úkraínu án nokkurs teljandi árangurs í landvinningastríði Putins Rússlandsforseta, halda Rússar áfram eldflauga- og loftárásum á borgir og innviði landsins. Árásirnar voru einstaklega margar í morgun þegar Rússar skutu 50 eldflaugum ýmist frá herskipum á Svarta hafi eða herþotum, meðal annars á höfuðborgina Kænugarð. Úkraínumenn segjast hafa grandað 47 þessara flauga og 24 íranska dróna. Auk þess hafi Rússar skotið 97 minni eldflaugum frá fjölodda eldflaugapöllum á landi. Rússar halda áfram loftárásum sínum á íbúðabyggð og innviði í Úkraínu en gengur ekkert í landhernaði.AP/Roman Hrytsyna Talsmaður Úkraínuher segir að Rússa undirbúa nýja stórsókn. „Stofnanir á vegum ríkisins og einkaaðilar þurfa fyrir 29. janúar að leggja fram hjá hermálayfirvöldumskrár yfir einstaklinga til þátttöku í varaliði hersins. Næsta stóra herkvaðningarbylgja mun fara fram í febrúarlok,“ segir Oleksandr Shtupun talsmaður Úkraínuhers. Úkraínumönnum hefur tekist að ná þó nokkrum skriðdrekum af Rússum og nota þá gegn þeim. Þeir fá hins vegar enga varahluti í þá og vestrænu skriðdrekarnir eru líka miklu fullkomnari.AP/Aleksandr Shulman Þetta kemur heim og saman við miklar sameiginlegar heræfingar Rússa og Belarússa í Belarus þessa dagana. Rússar eru einnig sakaðir um að tefja kornútflutning frá Úkraínu. Um eitt hundrað skip hafa beðið í allt að þrjár vikur eftir því að komast í eftirlitsskoðun. Dr. Stepen Flynn sérfræðingur hjá Northeastern háskólanum í Bandaríkjunum segir að nú væru aðeins fimm skip ýmist á útleið með korn eða á leið til hafnar að ná í korn afgreidd á dag. Auðvelt væri að afgreiða tíu skip. „Þeim sem sigla til hafnar á skipi sem hefur fengið heimild samþykkta ber einungis að staðfesta að engin vopn séu um borð í skipinu. Með vopnum erum við að tala um skotfæri í miklu magni. Við erum ekki að leita að nál í heystakki. Þetta er nokkuð sem á að vera einfalt í framkvæmd,“ segir Dr. Flynn.
Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Úkraína NATO Tengdar fréttir Kirkjugarður Wagner hefur sjöfaldast að stærð Kirkjugarður þar sem málaliðar Wagner Group eru jarðaðir hefur margfaldast af stærð á undanförnum mánuðum. Málaliðahópurinn er sagður hafa orðið fyrir miklu mannfalli í austurhluta Úkraínu en flestir þeirra sem falla eru sagðir vera fangar sem tóku tilboði um sex mánaða þjónustu í Wagner í skiptum fyrir frelsi. 26. janúar 2023 13:50 Skutu þrjátíu eldflaugum á Úkraínu Umfangsmikil loftárás er nú í gangi í Úkraínu en Rússar skutu í morgun að minnsta kosti þrjátíu eldflaugum á skotmörk í landinu. 26. janúar 2023 08:32 Selenskí þakklátur fyrir skriðdrekana en vill líka þotur Volodomír Selenskí Úkraínuforseti þakkar kollegum sínum á vesturlöndum fyrir þá ákvörðun að senda Úkraínuher skriðdreka í tugatali en málið virðist loksins vera komið á rekspöl eftir margra vikna umræður. 26. janúar 2023 07:39 Þingmenn þurfa ekki lengur að opinbera tekjur sínar né eignir Neðri deild rússneska þingsins hefur samþykkt ný lög sem gera það að verkum að þingmenn munu ekki lengur þurfa að opinbera tekjur sínar né eignir. Þess í stað munu skattayfirvöld gefa út „samantekt“ byggða á þeim gögnum sem þeim berast. 26. janúar 2023 07:06 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Heyrði mikla skruðninga í Hítárdal fyrir miðnætti á föstudag Innlent Veiðiþjófar stálu frá barni við Hítarvatn Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Innlent Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Innlent Helga aðeins 15 mínútur að landa fyrsta laxinum Innlent Fleiri fréttir Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Sjá meira
Kirkjugarður Wagner hefur sjöfaldast að stærð Kirkjugarður þar sem málaliðar Wagner Group eru jarðaðir hefur margfaldast af stærð á undanförnum mánuðum. Málaliðahópurinn er sagður hafa orðið fyrir miklu mannfalli í austurhluta Úkraínu en flestir þeirra sem falla eru sagðir vera fangar sem tóku tilboði um sex mánaða þjónustu í Wagner í skiptum fyrir frelsi. 26. janúar 2023 13:50
Skutu þrjátíu eldflaugum á Úkraínu Umfangsmikil loftárás er nú í gangi í Úkraínu en Rússar skutu í morgun að minnsta kosti þrjátíu eldflaugum á skotmörk í landinu. 26. janúar 2023 08:32
Selenskí þakklátur fyrir skriðdrekana en vill líka þotur Volodomír Selenskí Úkraínuforseti þakkar kollegum sínum á vesturlöndum fyrir þá ákvörðun að senda Úkraínuher skriðdreka í tugatali en málið virðist loksins vera komið á rekspöl eftir margra vikna umræður. 26. janúar 2023 07:39
Þingmenn þurfa ekki lengur að opinbera tekjur sínar né eignir Neðri deild rússneska þingsins hefur samþykkt ný lög sem gera það að verkum að þingmenn munu ekki lengur þurfa að opinbera tekjur sínar né eignir. Þess í stað munu skattayfirvöld gefa út „samantekt“ byggða á þeim gögnum sem þeim berast. 26. janúar 2023 07:06