Táningurinn Johan Cruyff skoraði tvívegis þegar Liverpool mætti Ajax síðast Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. október 2020 13:31 Johan Cruyff var frábær knattspyrnumaður og mikill áhrifavaldur í hollenskum fótbolta sem og hjá Barcelona. Getty/Mark Leech
Nítján ára gamall Johan Cruyff var á skotskónum í báðum leikjunum þegar Ajax sló Liverpool út úr Evrópukeppni meistaraliða í desember 1966. Í kvöld mætast liðin í fyrsta sinn síðan þá eða í næstum því 54 ár. Leikurinn á Johan Cruyff Arena í Amsterdam í kvöld verður fyrsti leikur Ajax og Liverpool síðan í Evrópukeppni meistaraliða 1966-67. Ajax vann þá fyrri leikinn 5-1 á heimavelli sínum og tryggði sér síðan sæti í þriðju umferð með því að gera 2-2 jafntefli í seinni leiknum á Anfield í Liverpool. Leikurinn fór fram í mikilli þoku í Amsterdam. Á þessum árum var Johan Cruyff aðeins nítján ára gamall en hafði slegið í gegn á tímabilinu á undan. Johan Cruyff skoraði eitt af fimm mörkum Ajax í fyrri leiknum og skoraði síðan bæði mörkin í jafntefli á Anfield. Cruyff skoraði alls 41 mark í 41 leik í öllum keppnum á þessu tímabili. Stórsigurinn í fyrri leiknum kom Ajax á kortið í Evrópu en liðið átti síðan eftir að vinna Evrópukeppni meistaraliða þrjú ár í röð frá 1971 til 1973. Þá var Johan Cruyff orðinn besti knattspyrnumaður heims og um sumarið var hann seldur til Barcelona. Hér fyrir neðan má sjá hollenska heimildarmynd um þennan sögulega sigur Ajax á Liverpool. watch on YouTube Frá þessum tapleik í Amsterdam fyrir tæpum 54 árum síðan þá hefur Liverpool ekki tapað í þrettán leikjum á móti hollenskum liðum þar af hefur liðið unnið átta þeirra. Ajax hefur ekki gengið vel í síðustu heimaleikjum sínum í Meistaradeildinni en liðið er án sigurs í síðustu sex leikjum þar af hafa fjórir þeirra tapast og tveir á móti enskum liðum (2-3 á móti Tottenham í maí 2019 og 0-1 á móti Chelsra í október 2019). Leikur Ajax og Liverpool í kvöld hefst klukkan 19.00 og verður hann sýndur beint á Stöð 2 Sport 4 en útsendingin hefst klukkan 18.50. Meistaradeildarmessan mun fylgjast með öllum leikjum kvöldins frá og með 18.30 á Stöð 2 Sport 2 en að auki verða sýndir beint leikur Real Madrid og Shakhtar Donetsk (S2 Sport 4 klukkan 16.45), leikur Bayern München og Atletico Madrid (S2 Sport klukkan 18.50) og leikur Manchester City og Porto (S2 Sport 5 klukkan 18.50). watch on YouTube
Meistaradeild Evrópu Enski boltinn Mest lesið Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met Formúla 1 Lowry hástökkvari dagsins og blandar sér í baráttuna Golf Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Fótbolti Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild Fótbolti Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Fótbolti Fleiri fréttir Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Stjóri Spurs ósáttur við viðhorfið: „Þetta er utan félagsins, innan þess, alls staðar“ Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Telja að Bruno verði áfram á Old Trafford Sagði sína menn hafa þurft að þjást og hrósaði varamarkverðinum Varamarkmaðurinn og Håland hetjurnar: Man City á toppinn fyrir lokaumferðina Sjá meira