Lífið

Jón Jónsson heldur öðruvísi tónleika í Hörpunni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jón Jónsson stígur á stokk í bílastæðakjallaranum í Hörpu.
Jón Jónsson stígur á stokk í bílastæðakjallaranum í Hörpu.

Jón Jónsson og bílastæðaforritið EasyPark ætla að snúa bökum saman og halda bílatónleika í miðbæ Reykjavíkur, nánar tiltekið í bílastæðahúsi Hörpu.

Í ljósi heimsfaraldurs, takmarkana og tilmæla sóttvarnalæknis leita listamenn að nýjum leiðum til þess að koma fram í öruggu umhverfi. Jón Jónsson í samstarfi við EasyPark bílastæðaforrit hafa ákveðið að halda bílatónleika í Reykjavík. Þannig er hægt að njóta tónleikanna áhyggjulaust í bílnum bara með því að kveikja á útvarpinu en þeir fara fram annað kvöld. 

Jón mun stíga á sviðið í tvígang, klukkan átta og klukkan níu. Áhorfendur þurfa aðeins að borga fyrir bílastæðin, annars er frítt á tónleikana. 

„Með heimsfaraldur í gangi og dimman vetur vildum við leggja eitthvað af mörkum sem gæti gefið kraft og jákvæðni út í samfélagið. Þetta er ástæðan fyrir því að við höfum sett saman þessa tónleika,“ segir Jón Jónsson.

„Okkar verkefni er að einfalda hluti eins og að skrá bíl í stæði, en af hverju ekki líka tónleika? Um allan heim er fólk aðskilið vegna kórónuveirufaraldursins. Í þessum óvenjulegu aðstæðum viljum við bjóða fólki upp á einstaka og skemmtilega upplifun. Saman en samt hvor í sínu lagi! Bílatónleikar eru nýtt verkefni sem miðar að því að breyta bílastæðum í óhefðbundinn stað til þess að upplifa tónleika saman,“ segir Bernd Reul yfirmaður EasyPark á Íslandi.

Verkefni EasyPark er að sjá til þess að fólk geti notið borgarlífsins sem allra best án þess að þurfa að hafa áhyggjur af bílastæðum.

„Ég vona að margir komi og njóti sýningarinnar. Þetta verður eitthvað sem þú vilt ekki missa af,“ segir Jón Jónsson.

EasyPark er eitt vinsælasta bílastæðaapp Evrópu með yfir 10 milljónir notenda. Hægt er að nota appið til að greiða fyrir bílastæðið sitt, hvort sem er á götu eða í bílastæðahúsi í yfir 2.000 borgum í 20 löndum í Evrópu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×