Ráðinn framkvæmdastjóri Sæplasts í Evrópu

Arnar Már Snorrason, nýr framkvæmdastjóri Sæplasts í Evrópu.
Arnar Már Snorrason, nýr framkvæmdastjóri Sæplasts í Evrópu. Ljósmynd/Aðsend

Arnar Már Snorrason hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri Sæplasts í Evrópu með aðsetur á Dalvík. Hann hefur verið framkvæmdastjóri markaðsþróunar hjá fyrirtækinu frá 2011.

Fram kemur í tilkynningu að Arnar taki við starfinu af Daða Valdimarssyni sem mun færa sig í starf forstjóra Rotovia, nýstofnaðs móðurfélags Sæplasts. Undir Sæplast í Evrópu tilheyrir starfsemi félagsins á Íslandi, Spáni og Noregi ásamt söluskrifstofum félagsins í Evrópu, Afríku og Asíu.

Arnar hefur gegnt margvíslegum störfum innan fyrirtækisins frá því að hann hóf störf hjá félaginu m.a. sinnt sölu- og markaðsstarfi, verið verksmiðjustjóri Sæplasts á Dalvík og verið framkvæmdarstjóri Sæplasts í Hollandi. Þá lauk Arnar MBA námi frá Háskólanum í Reykjavík í júní 2022.

Segir í tilkynningu að Sæplast sé leiðandi fyrirtæki í heiminum í hönnun og framleiðslu á endurnýtanlegum og endurvinnanlegum kerum og brettum sem notuð eru í matvælaframleiðslu og í endurvinnsluiðnaði. Sæplast hannar og framleiðir einnig breiða vörulínu í byggingatengdum vöruflokkum s.s. brunna, tanka, rotþrær, skiljur o.fl. Þessir vöruflokkar eru að stærstum hluta seldir í gegnum byggingavöruverslanir um land allt. Í verksmiðju félagsins á Dalvík starfa að jafnaði um 65 manns en alls eru um 120 starfsmenn hjá Sæplasti í Evrópu.

Rotovia er nýtt félag sem stofnað var eftir að gengið var frá kaupum íslenskra fjárfesta á hverfissteypudeild Berry Global Inc en innan þeirrar deildar eru meðal annars Sæplast og Tempra sem eru félög með langa og farsæla sögu á Íslandi. Hverfissteypudeild Berry Global Inc var áður hluti af Promens hf. sem selt var úr landi árið 2015 en félagið var á þeim tíma eitt stærsta fyrirtæki landsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK