Ásdís segir formannsframboð ekki á dagskrá

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi.
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi. Ljósmynd/Aðsend

Ásdís Kristjáns­dótt­ir, bæj­ar­stjóri Kópa­vogs, seg­ir það ekki vera á dag­skrá hjá sér að bjóða sig fram til for­mennsku í Sjálf­stæðis­flokkn­um. Hún kveðst ekki hafa leitt hug­ann að fram­boði til vara­for­manns eða rit­ara á kom­andi lands­fundi í lok fe­brú­ar.

Þetta seg­ir hún í sam­tali við mbl.is.

Kem­ur til greina að þú bjóðir þig fram til for­mennsku í Sjálf­stæðis­flokkn­um?

„Það er ekki á dag­skrá hjá mér eins og sak­ir standa enda stór verk­efni fram und­an í Kópa­vogi sem ég vil leiða áfram,“ svar­ar Ásdís. 

Ekki íhugað fram­boð til vara­for­manns eða rit­ara

Miðstjórn Sjálf­stæðis­flokks­ins ákvað á fundi sín­um í há­deg­inu að breyta ekki dag­setn­ingu lands­fund­ar flokks­ins. Fer hann því fram dag­ana 28. fe­brú­ar til 2. mars.

Ásdís kveðst aðspurð ekki hafa leitt hug­ann að fram­boði til vara­for­manns eða rit­ara. 

Bjarni Bene­dikts­son, formaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, til­kynnti 6. janú­ar að hann myndi ekki sækj­ast eft­ir end­ur­kjöri.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert
Loka