Er höfundur Njálu handan við hornið? Jóhann Hlíðar Harðarson skrifar 4. febrúar 2023 15:00 Síða úr Brennu-Njáls sögu í Möðruvallabók. Möðruvallabók er handrit frá 13. öld sem inniheldur 11 Íslendingasögur, þ.á m. Njálu og Egils sögu. Det store norske leksikon Gervigreindarforrit sem nú ríða húsum gætu orðið lykillinn að því að leysa gátuna um hver skrifaði Brennu-Njáls sögu og fleiri Íslendingasögur. Spænskir fræðimenn hafa nýlega, með hjálp gervigreindar, leyst aldagamla gátu um höfund leikrits sem varðveitt hefur verið á Landsbókasafni Spánar í tæplega 150 ár.
Spænska gullöldin Á Spáni eru tveir óumdeildir risar þess tímabils sem kallast gullöld spænskra bókmennta. Hún stóð yfir frá sameiningu Spánar og landnámi Spánverja í Ameríku í lok 15. aldar og fram yfir miðja 17. öld. Þessir risar voru annars vegar Miguel de Cervantes, sem skrifaði eina bestu skáldsögu allra tíma um riddarann sjónumhrygga, Don Kíkóta og hins vegar Lope de Vega, sem er einn allra afkastamesti rithöfundur sögunnar, en eftir hann liggja rúmlega 3.000 verk; skáldsögur, ljóð, smásögur og leikrit, en þau voru ekki færri en 500 talsins. Gervigreind leysti tæplega 150 ára ráðgátu Á landsbókasafni Spánar hefur legið leikrit frá því 1882, sem enginn veit hver skrifaði. Fyrir rúmlega ári réðust spænskir fræðimenn í það verk að leita liðsinnis gervigreindarforrita til þess að freista þess að finna höfund verksins. Fyrst fór verkið í gegnum forritið Transkribus, sem er evrópskt verkefni sem hýst er við háskólann í Innsbruck. Forritið var matað á 1.300 handritum frá gullöldinni og svo var forritið matað á hinu dularfulla leikriti. Eftir það var leikritið sett inn í annað gervigreindarforrit á Spáni þar sem hýst eru 2.800 leikrit eftir 350 höfunda frá 16. og 17. öld. Loks voru grisjuð út 500 algengustu orð leikritsins og þau borin saman við sambærilegan orðabanka annarra leikrita og þá kom hið endanlega svar sem fræðimönnum hafði ekki tekist að svara í tæplega 150 ár: Leikritið „Lára hin franska“ er, án vafa, eftir Lope de Vega. Germán Vega, prófessor í spænskum bókmenntum, segir í samtali við El País, að gervigreindin hafi gert gott betur en að finna höfund leikritsins, hún slær því föstu að Lope de Vega hafi skrifað það 5-6 árum fyrir dauða sinn, árið 1635. Uppgötvunin var gerð heyrinkunn í síðustu viku, í árlegu fræðiriti sem eingöngu fæst við rannsóknir á verkum Lope de Vega. Getur gervigreind fundið höfund Njálu? Spurningin fyrir íslenskan bókmenntaheim, í ljósi þessarar uppgötvunar, er einföld: Tekst íslenskri þjóð loksins, og kannski innan skamms, að komast að því hverjir eru höfundar Íslendingasagna á borð við Brennu-Njáls sögu og annarra stórvirkja sögualdar?
Spánn Bókmenntir Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Erlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV Innlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Innlent „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Fleiri fréttir Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Papa's Pizza, verkföll flugvallarstarfsmanna og óvæntur forsetaframbjóðandi Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Framboð Viktors Traustasonar er gilt Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Útimarkaðurinn í Mosó hættir Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka Sjá meira