Albert Guðmundsson skoraði sigurmark AZ Alkmaar þegar liðið fékk Sittard í heimsókn í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Leiknum lauk með 1:0-sigri AZ Alkmaar en Albert skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu á 29. mínútu.
Íslenski landsliðsmaðurinn lék allan leikinn fyrir hollenska liðið en AZ Alkmaar er með 67 stig í öðru sæti deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir af tímabilinu.