„Atvinnulífið hefur ekki sýnt vott af samfélagsábyrgð á miklum óvissutímum“

Formaður VR segir atvinnulífið hafa nýtt sér viðkvæma stöðu í samfélaginu, Þar sem verðbólga er há og vextir í hæstu hæðum, til að skapa sér „fordæmalaust góðæri á kostnað almennings.“

Ragnar Þór Ingólfsson
Auglýsing

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, telur mik­il­vægt að verka­lýðs­hreyf­ingin setji fyr­ir­vara í kjara­samn­inga um aukin kaup­mátt, lægri verð­bólgu og vaxta­stig og raun­veru­legan hvata fyrir atvinnu­lífið um að slík mark­mið náist, því síð­ustu mán­uðir hafi sýnt að ansi margt sem geti breyst á stuttum tíma. „At­vinnu­lífið hefur ekki sýnt vott af sam­fé­lags­á­byrgð á miklum óvissu­tímum heldur nýtt sér við­kvæma stöðu til að skapa sér for­dæma­laust góð­æri á kostnað almenn­ings.“

Þetta kemur fram í færslu sem Ragnar Þór birti á Face­book í dag.

Þar fer hann yfir það sem hann kallar stað­reyndir um stöðu mála í yfir­stand­andi kjara­við­ræð­um, sem virð­ast nú fyrst og síð­ast snú­ast um að gera skamm­tíma­samn­ing út jan­úar 2024, eða til 14 mán­aða, líkt og Starfs­greina­sam­bandið skrif­aði undir fyrir nokkrum dög­um. 

Ragnar spyr í færsl­unni hvað hafi gerst á síð­ustu 14 mán­uð­um? „Fyrir 14 mán­uðum voru stýri­vextir 1,5% en eru í dag 6%. Fyrir 14 mán­uðum var 12 mán­aða verð­bólga 4,4% en er í dag 9,3%. Fyrir 14 mán­uðum stefndi í metaf­komu fyr­ir­tækja, í dag stefnir í enn betri afkomu.“

Stað­reyndir um stöðu mála í yfir­stand­andi kjara­við­ræð­u­m. 14 mán­aða kjara­samn­ingur er vissu­lega stuttur tími en hvað...

Posted by Ragnar Þór Ing­ólfs­son on Tues­day, Decem­ber 6, 2022

Í fyrra hafi hreinar vaxta­tekjur stærstu bank­anna þriggja, Lands­bank­ans, Íslands­banka og Arion banka verið 72,2 millj­arðar en í ár stefni þær í að verða yfir 102 millj­arðar króna. Í fyrra hafi verið 4,4 pró­sent hag­vöxtur en í ár stefni í að hann fari yfir 6,5 pró­sent. „Gríð­ar­leg óvissa blasir við íslenskum heim­ilum en óvissan í atvinnu­líf­inu og fjár­mála­kerf­inu snýst að mestu um hversu mikil aukn­ing verður á afkomu frá metár­inu í fyrra. Þess vegna er mik­il­vægt að verka­lýðs­hreyf­ingin setji fyr­ir­vara í kjara­samn­inga um aukin kaup­mátt, lægri verð­bólgu og vaxta­stig og raun­veru­legan hvata fyrir atvinnu­lífið um að slík mark­mið náist.“

Vil­hjálmur sorg­mæddur og dapur

Mikil ólga er í verka­lýðs­hreyf­ing­unni eftir að Starfs­greina­sam­bandið skrif­aði undir kjara­samn­ing fyrir flest aðild­ar­fé­lög sín sem gildir út jan­úar 2024 á laug­ar­dag.

Auglýsing
Vil­hjálmur Birg­is­­son, for­­maður Starfs­­greina­­sam­­bands­ins, sagði í færslu á Face­book á sunnu­dag  að samn­ing­­ur­inn sem náð­ist við Sam­tök atvinn­u­lífs­ins sé „sá lang­besti sem ég hef komið að á mínum 20 árum sem for­yst­u­­maður í verka­lýðs­hreyf­­ing­unni, hvað verka­­fólk á hinum almenna vinn­u­­mark­aði varð­­ar“. Það sé „stað­­reynd sem eng­inn getur and­­mælt“.

Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, for­maður Efl­ing­ar, og Ragnar Þór hafa bæði gagn­rýnt samn­ing­inn og meðal ann­ars sagt hann veikja samn­ings­stöðu verka­lýð­hreyf­ing­ar­innar gagn­vart rík­inu. VR er stærsta stétt­ar­fé­lag lands­ins og Efl­ing það næst stærsta. 

Vil­hjálmur sagði í umræddri færslu hann við­ur­kenndi það fús­­lega að vera sorg­­mæddur og dapur „að sjá fólk sem ég taldi vera góða vini mína stinga mig í bakið með því að segja að ég hafi nán­­ast framið „glæp“ með þessum samn­ingi. Samn­ingi sem gildir í rétt rúmt ár með launa­hækk­­unum til þeirra sem höllustum fæti standa á íslenskum vinn­u­­mark­aði, hækk­­unum sem ekki eiga sér hlið­­stæðu hvað verka­­fólk á hinum almenna vinn­u­­mark­aði varð­­ar.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent