Mega ekki skíra barnið sitt Kisu Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 30. janúar 2023 21:22 Taldi nefndin merkingu nafnsins vera óvirðulega og gæti orðið nafnbera til ama. Vísir/AP Xavier, Æja, Klaría og Hyrrokkin eru á meðal þeirra eiginnafna sem samþykkt voru á fundi mannanafnanefndar fyrr í mánuðinum.
Alls voru sextán beiðnir teknar fyrir á fundinum og voru þær allar samþykktar nema ein. Önnur eiginnöfn sem voru samþykkt voru kvenkynsnöfnin Adolfína, Sólbráð, Nathalía og Valía og karlkynsnöfnin Bendt, Múr, Sonny, Hachim og Zachary. Þá féllst nefndin á föðurkenninguna Mikaelsson. Nefndin hafnaði hins vegar eiginnafninu Kisa en taldi nefndin merkingu nafnsins vera óvirðulega og gæti orðið nafnbera til ama. Í úrskurði segir meðal annars: Eiginnafnið Kisa tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Kisu, og er ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls. Aftur á móti reynir hér á hvort uppfyllt sé skilyrði um að nafn megi ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama. Nafnið Kisa er leitt af samnafninu kisa sem er gæluheiti vel þekktrar dýrategundar. Þótt dýraheiti séu til sem mannanöfn, svo sem Björn, Úlfur, Arna og Lóa, eru gæluheiti húsdýra almennt ekki notuð sem mannanöfn. Þá kemur fram að í greinargerð með lögum um mannanöfn segir að það séu auðsæilega mikilvægir hagsmunir barna að þeim séu ekki gefin nöfn sem telja verður ósiðleg, niðrandi eða meiðandi. Jafnframt er bent á að ákvæðið um að nafn megi ekki vera nafnbera til ama sé vandmeðfarið þar sem erfitt sé að leggja hlutlægt mat á ama. Áréttað er að ákvæðinu skuli beita mjög varlega og er tekið fram að eðlilegt sé að ákvæðinu sé því aðeins beitt að telja megi merkingu nafns neikvæða eða óvirðulega. Þegar svo háttar að fullorðinn einstaklingur sækir um að taka upp nýtt nafn er ekki unnt að fullyrða að nafnið verði nafnbera til ama. Hins vegar verður ekki hjá því komist að hafa í huga að með því að setja nafn á mannanafnaskrá er það um leið orðið mögulegt nafn fyrir nýfædd börn. Mannanafnanefnd ber því að meta hvort nafn sé þess eðlis að það geti orðið barni til ama.
Mannanöfn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Innlent „Erum hér í kvöld svo þetta gerist ekki í þögn“ Innlent Umgengni og viðhorf til fatagáma hafi farið hríðversnandi Innlent Vænsti maður og harðduglegur Innlent Fjöldi látinna á Gasa á reiki Erlent Heimafæðingum fjölgar og teljast eðlilegri en áður Innlent Stefnt að því að ljúka samningaviðræðum um Ölfusárbrú nú í maí Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Innlent Starfsmaður Sjúkratrygginga grunaður um fjárdrátt Innlent Fleiri fréttir Stefnt að því að ljúka samningaviðræðum um Ölfusárbrú nú í maí Umgengni og viðhorf til fatagáma hafi farið hríðversnandi „Erum hér í kvöld svo þetta gerist ekki í þögn“ Heimafæðingum fjölgar og teljast eðlilegri en áður Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Næsta gos gæti hafist á hverri stundu „Kisuprestar“ á Snæfellsnesi Hið opinbera skuldi sér og öðrum mæðrum afsökunarbeiðni Starfsmaður Sjúkratrygginga grunaður um fjárdrátt Óska eftir tilnefningum um Reykvíking ársins Þvingun úr landi og prestar í kisubúning Veikindi Blessing ekki nógu mikil til að fresta brottvísun Vænsti maður og harðduglegur Spreyjaði málningu á bifreiðar í miðbænum Fluttur með þyrlu til Reykjavíkur eftir árekstur Kaldavatnslaust á Arnarnesi Telur ekki viðeigandi að tjá sig um mál Maríu Sigrúnar Þurfi að gera úrbætur en ástandið verið ýkt Lilja hefur áhyggjur af „nýlenskunni“ á RÚV Lýsa eftir Bandaríkjamanni Bíllinn í happdrætti Ástþórs úr hans eigin smiðju Göngin lokuð á miðvikudagskvöld Tekur til varna eftir stuðningsyfirlýsingu við Katrínu Maðurinn ríkisborgari Möltu Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi vegna ofsaaksturs undir áhrifum Áhorf á úrslit Eurovision hríðféll Sýnist stefna í kapphlaup tveggja en útilokar þó ekki vendingar Mótmæla þróun gervigreindar á Austurvelli Veit ekki hvort hann fái svar áður en spurningin verði úrelt Auknar líkur á gosi sem gæti hafist án fyrirvara Sjá meira