Rótgróin iðnaðardrungaútgáfa býður íslenskan listamann velkominn um borð Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar 29. nóvember 2021 16:31 aska er raftónlistarverkefni Kristófers Páls Viðarssonar, þar sem hann tvinnar saman ljóð og hljóð. Bryna Steinþórsdóttir Í dag gefur tónlistarmaðurinn Kristófer Páll út nýja breiðskífu undir nafninu aska hjá þýska útgefandanum Galakthorrö. Tónlistin er unnin á svokallaða flaumræna hljóðgervla (e. analogue), og þá mestmegnis á modular hljóðgervil.
Hljóðheimurinn er útlendur og mekanískur, og mikið um að hljóðgervillinn sé notaður til að endurskapa hljóð sem heyra mætti á víðavangi í iðnvæddum heimi. Breiðskífan er fáanleg á vínyl, geisladisk og kassettu, en áhangendur útgefandans hrepptu allar vínylplöturnar í forsölu skömmu eftir að Galakthorrö tilkynnti útgáfur ársins í október. Galakthorrö er rótgróin útgáfa, rekin af meðlimum industrial-sveitarinnar Haus Arafna, sem sérhæfir sig í óhefðbundinni iðnaðarskotinni tónlist og á sér marga dygga fylgjendur. Vínylplöturnar frá útgáfunni hafa margar hverjar orðið safngripir með árunum. Sjö ár eru orðin síðan frumburður ösku, grátónar, leit dagsins ljós. Kristófer segir verkefnið vera eins konar framlengingu á ljóðlistinni og hljóðheiminn vega þyngra en lagasmíðarnar sjálfar. „Á undanförnum árum hefur hljóðhönnunin þróast í átt að industrial, stefnu sem einkennir Galakthorrö, en tónlistin er að miklu leyti unnin á modular hljóðgervil og innblásturinn sóttur inn á við. Það eimir lítið eftir trommuheiladrifnum einfaldleikanum sem einkenndi grátóna. Þess í stað ægir ólíkum jaðarstefnum saman með tilheyrandi dapurleika, ónotalegum tíðnum og iðnaðarskruðningum,“ segir listamaðurinn um plötuna nýju. Brynja Steinþórsdóttir gerði myndband fyrir lagið falið, næstsíðasta lag plötunnar. Það má sjá hér að neðan.
Mest lesið „Þetta styrkti mig rosalega en þetta braut mig líka“ Tónlist Fataherbergið seldi henni íbúðina strax Tíska og hönnun Gaman að geta grætt fólk á góðan hátt Lífið Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Lífið „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Lífið Sérfræðingar rýna í Bakgarðshlaupið: „Endamarkið er í hausnum á þér“ Lífið Grænmetisæta í 38 ár en ekki lengur Lífið Fjórar dýrindis diskósúpur úr hráefnum sem annars hefði verið hent Lífið Bakaríið í beinni Lífið Kynfræðingur selur slotið á landsbyggðinni Lífið Fleiri fréttir „Þetta styrkti mig rosalega en þetta braut mig líka“ Gítarleikarinn Duane Eddy er látinn MANOWAR til Íslands í fyrsta sinn „Fer ekki á milli mála að ég er að syngja um stráka“ Fögnuðu íslenskri tónlist við fjöruga opnun Seldi upp á útgáfutónleika án útgáfu „Það má segja að þetta sé í raun sorg og uppgjör“ Kom öllum að óvörum með fleiri lögum í nótt Sest við flygilinn og setur íslenska tónlist í nýjan búning Biðst afsökunar á brösuglegum Coachella-flutningi „Eina sem maður getur virkilega bætt í lífinu er maður sjálfur“ „Ég hef aldrei fylgt reglunum“ Uppselt í þriðja sinn á augabragði Íslandsvinurinn Yung Lean setur stefnuna á risatónleika í Hörpu Inga Sæland með sumarsmell í vasanum Fullur tilhlökkunar fyrir nýjum kafla Nick Cave til Íslands Emelíana Lillý úr FNV vann Söngkeppni framhaldsskólanna Tók símtalið á pabba fyrir Herbert Sjá meira