Öruggt hjá Kristjáni Viggó

Kristján Viggó stekkur í dag.
Kristján Viggó stekkur í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kristján Viggó Sigfinnsson, efnilegasti hástökkvari landsins, vann öruggan sigur í hástökki pilta 18-19 ára á Meistaramóti 15-22 ára innanhúss í frjálsíþróttum í Laugardalshöll í dag. 

Kristján stökk yfir slétta tvo metra í fyrstu tilraun, en hann felldi í þrígang 2,07 metra. Kristján var nokkuð frá sínu besta því hann hefur hæst stokkið 2,15 metra. Lág­markið inn á HM ung­menna er 2,16 metr­ar.

Vigfús Nói Birgisson varð annar með 1,77 metra og Egill Smári Tryggvason þriðji með stökk upp á 1,72 metra. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert