Saksóknarar vilja samtök Navalnís á sama stall og ISIS og al-Qaeda Samúel Karl Ólason skrifar 17. apríl 2021 07:59 Alexei Navalní afplánar nú dóm sinn í alræmdu fangelsi í Rússlandi. AP/Alexander Zemlianichenko Ríkissaksóknarar í Moskvu fóru í gær fram á það við dómara að andspillingarsamtök Alexei Navalní verði sett á lista hryðjuverka- og öfgasamtaka. Slík skilgreining fæli í sér að hægt yrði að dæma aðgerðasinna og fólk sem tekur þátt í mótmælum samtakanna gegn ríkisstjórn Vladimírs Pútín, forseta, til langra fangelsisdóma.
Samtök Navalnís hafa rannsakað spillingu innan ríkisstjórnar Pútíns og skipulagt mótmæli í Rússlandi. Í yfirlýsingu frá skrifstofu saksóknaranna segir að meðlimir samtakanna reyni að grafa undan Rússlandi og breyta grunni stjórnskipunar þar, undir yfirskini frjálslyndra slagorða. Meðlimir samtakanna eru einnig sakaðir um að reyna að efla til byltingar. Á umræddum lista má finna hin ýmsu samtök eins og Íslamska ríkið, al-Qaeda og Votta Jehóva, samkvæmt frétt Moscow Times. Þar segir einnig að stuðningsmenn Navalnís hafi orðið fyrir sífellt meiri þrýstingi í Rússlandi eftir að stjórnarandstæðingurinn sneri heim frá Þýskalandi en þangað var hann fluttur í dái eftir að eitrað var fyrir honum með taugaeitrinu Novichok í Rússlandi síðasta sumar. Sjá einnig: Fjöldi stjórnarandstæðinga handtekinn í Rússlandi Navalní var handtekinn við komuna til Rússlands og var hann sakaður um að hafa rofið skilorðsdóm frá 2014 með því að fara til Þýskalands. Í kjölfar handtöku Navalní voru haldin umfangsmikil mótmæli víða um Rússland og voru hundruð mótmælenda handteknir. Flestir bandamenn Navalnís standa frammi fyrir ákærum vegna mótmælanna eða hafa flúið land, samkvæmt frétt Reuters. Til að mynda var myndatökumaður sem hafði unnið fyrir Navalní dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar í gær fyrir að hafa hvatt til öfgastarfsemi. Ákærurnar gegn honum byggðu á tístum sem hann skrifaði eftir að rússneskur blaðamaður kveikti í sér. Samkvæmt rússneskum miðlum fór myndatökumaðurinn hörðum orðum um Pútín og nokkra af hans helstu bandamönnum og sakaði þá um að bera ábyrgð á dauða konunnar. Bandamenn Navalnís segjast ekki efast um að dómskerfið muni verða við beiðni ríkissaksóknara en segjast ætla að halda áfram á friðsaman og skilvirkan hátt. Versnandi heilsa í fangelsi Navalní er nú í hungurverkfalli í fangelsi og krefst hann þess að fá aðgang að lækni vegna bakverkja og þess að hann er að missa tilfinningu í fótum. Heilsa hans er sögð hafa versnað töluvert á undanförnum vikum. Skrifað var á Instagramsíðu hans nýverið að starfsmenn fangelsinsins stefndu á að þvinga mat ofan í hann. Það vill hann ekki og segist hann sannfærður um að hann megi ekki fá heimsókn frá lækni af ótta við að veikindi hans verði rakinn til nýrrar eitrunar.
Rússland Eitrað fyrir Alexei Navalní Tengdar fréttir Vísa tíu Rússum úr landi og beita refsiaðgerðum Ríkisstjórn Joes Biden, forseta Bandaríkjanna, tilkynnti í dag að tíu rússneskum erindrekum verður vikið úr landi og refsiaðgerðum beitt gegn 32 einstaklingum og fyrirtækjum í Rússlandi. Þar að auki verður bandarískum bönkum meinað að taka þátt í ríkisskuldabréfaútboðum í rúblum. 15. apríl 2021 13:30 Segir Navalní vera að missa tilfinningu í fótleggjum og höndum Heilsu rússneska stjórnarandstæðingsins Alexei Navalní hrakar enn og hefur hann verið að missa tilfinningu í fót- og handleggjum. Þetta segir lögfræðingur Navalnís, en Navalní er nú í fanganýlendu þar sem hann afplánar nú dóm vegna fjársvika. 8. apríl 2021 08:27 Navalní í hungurverkfall í fangelsinu Alexei Navalní, einn helsti stjórnarandstæðingur Rússlands, hóf hungurverkfall til að þrýsta á fangelsisyfirvöld að sjá honum fyrir læknisaðstoð. Hann er sagður þjást af bráðum verkjum í baki og fótleggjum. 31. mars 2021 17:43 Rússar hægja á Twitter Yfirvöld í Rússlandi hafa hægt á Twitter þar í landi vegna deilna ríkisstjórnar Vladímírs Pútíns, forseta, við samfélagsmiðlafyrirtæki. Sérstaklega hefur verið hægt á hraða internetsins þegar kemur að því að hlaða inn myndum og myndböndum á Twitter. 10. mars 2021 23:29 Fyrrverandi fangar lýsa slæmum aðstæðum og ofbeldi í fanganýlendu Navalnís Fyrrverandi fangar í fanganýlendunni sem Alexei Navalní var nýverið fluttur í, segja kerfisbundið ofbeldi gegn föngum eiga sér stað þar og að aðstæður séu vægast samt slæmar. 1. mars 2021 15:09 Júlía Navalnía sögð hafa flúið land Júlía Navalnía, eiginkona rússneska stjórnarandstæðingsins Alexei Navalní, er sögð hafa flúið land og haldið til Þýskalands. 10. febrúar 2021 14:54 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Svona var Pallborðið með Baldri, Höllu Hrund og Jóni Innlent Straumhvörf í veðrinu Innlent Átta forsetaefni klár með listana Innlent Ísraelar gera árás á Íran Erlent Hættir með Matargjafir á Akureyri með sorg í hjarta Innlent Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Innlent Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum Innlent Sakaður um fjölda afbrota: Ungar stúlkur einar heima urðu skelkaðar þegar hann ruddist inn Innlent Kæra bónda eftir að 29 naut fundust dauð Innlent Segjast hafa skotið niður dýrmæta sprengjuflugvél Erlent Fleiri fréttir Fengu aðstoð Demókrata við að koma hernaðaraðstoð úr nefnd Hefur mátt sitja undir svívirðingum um sjálfan sig Segjast hafa skotið niður dýrmæta sprengjuflugvél Handtekinn í tengslum við áform um að ráða Selenskí af dögum Ísraelar gera árás á Íran Kennedy-fjölskyldan lýsir yfir stuðningi við Biden Bandaríkin stöðvuðu fulla aðild Palestínumanna að SÞ Hrunið í gömlu kauphöllinni heldur áfram Afsalta sjó til drykkjar í þurrki í Barcelona Eiginmaður Sturgeon ákærður fyrir fjárdrátt Mega koma til að snæða í Grindavík en aðeins í rútu Johnson í erfiðri stöðu Hafa vitneskju um mögulegan dvalarstað Íslendings sem flýr réttvísina Útsendarar Rússa sakaðir um skipulagningu árása í Þýskalandi Mikill mannskaði eftir sögulegt úrhelli í eyðimörkinni Kjarnorkuknúin drónaþyrla mun leita að lífrænum sameindum á Títan Sendi ösku í allt að þriggja kílómetra hæð Ákærður fyrir að nota slagorð SS-sveitanna á fjöldafundi Stjórnvöld í Katar að endurskoða sáttasemjarahlutverk sitt Réði lífvörð eftir árásina á bandamann Navalnís Borgarstjóri sakaður um brot gegn dóttur sinni Hæsta vindmylla heims á landi reist í Danmörku Þingforsetinn segist ekki ætla að fara fet Ísraelar sagðir búnir að ákveða að svara fyrir sig Boðflennusæfíll hrellir Kanadamenn Mannskæð loftárás Rússa í Norður-Úkraínu Toppurinn á spírunni fundinn: „Margir í sjokki og enn að ná sér“ Kóralrif fölna á heimsvísu í fjórða skiptið á þremur áratugum Eins og hálfs árs úrkoma á einum sólarhring í Dubai Ítarleg úttekt á þjónustu við börn með kynama þungur áfellisdómur Sjá meira
Vísa tíu Rússum úr landi og beita refsiaðgerðum Ríkisstjórn Joes Biden, forseta Bandaríkjanna, tilkynnti í dag að tíu rússneskum erindrekum verður vikið úr landi og refsiaðgerðum beitt gegn 32 einstaklingum og fyrirtækjum í Rússlandi. Þar að auki verður bandarískum bönkum meinað að taka þátt í ríkisskuldabréfaútboðum í rúblum. 15. apríl 2021 13:30
Segir Navalní vera að missa tilfinningu í fótleggjum og höndum Heilsu rússneska stjórnarandstæðingsins Alexei Navalní hrakar enn og hefur hann verið að missa tilfinningu í fót- og handleggjum. Þetta segir lögfræðingur Navalnís, en Navalní er nú í fanganýlendu þar sem hann afplánar nú dóm vegna fjársvika. 8. apríl 2021 08:27
Navalní í hungurverkfall í fangelsinu Alexei Navalní, einn helsti stjórnarandstæðingur Rússlands, hóf hungurverkfall til að þrýsta á fangelsisyfirvöld að sjá honum fyrir læknisaðstoð. Hann er sagður þjást af bráðum verkjum í baki og fótleggjum. 31. mars 2021 17:43
Rússar hægja á Twitter Yfirvöld í Rússlandi hafa hægt á Twitter þar í landi vegna deilna ríkisstjórnar Vladímírs Pútíns, forseta, við samfélagsmiðlafyrirtæki. Sérstaklega hefur verið hægt á hraða internetsins þegar kemur að því að hlaða inn myndum og myndböndum á Twitter. 10. mars 2021 23:29
Fyrrverandi fangar lýsa slæmum aðstæðum og ofbeldi í fanganýlendu Navalnís Fyrrverandi fangar í fanganýlendunni sem Alexei Navalní var nýverið fluttur í, segja kerfisbundið ofbeldi gegn föngum eiga sér stað þar og að aðstæður séu vægast samt slæmar. 1. mars 2021 15:09
Júlía Navalnía sögð hafa flúið land Júlía Navalnía, eiginkona rússneska stjórnarandstæðingsins Alexei Navalní, er sögð hafa flúið land og haldið til Þýskalands. 10. febrúar 2021 14:54