Íslenski boltinn

„Var orðin svolítið gráðug“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Heiðdís Lillýardóttir í baráttu við Valskonuna Hlín Eiríksdóttir.
Heiðdís Lillýardóttir í baráttu við Valskonuna Hlín Eiríksdóttir. Vísir/Daníel Þór

Heiðdís Lillýjardóttir skoraði tvö mörk þegar Breiðablik sigraði ÍBV, 7-2, í Pepsi Max-deild kvenna í kvöld.

„Þetta kom á endanum sem var mjög gott,“ sagði Heiðdís eftir leik. ÍBV minnkaði muninn í 3-2 á 64. mínútu en Breiðablik skoraði síðustu fjögur mörk leiksins.

Heiðdís, sem hafði aðeins skorað eitt mark í efstu deild fyrir leikinn í kvöld, gerði sér lítið fyrir og skoraði tvö mörk, bæði eftir hornspyrnur.

„Ég veit ekki hvað gekk svona vel, ég keyrði mig bara í gang,“ sagði Heiðdís sem var í tvígang nálægt því að skora þriðja markið sitt.

„Ég var orðin svolítið gráðug,“ sagði Heiðdís sem skoraði reyndar slatta fyrir Hött í næstefstu deild enda lék hún þá sem framherji.

„Ég hef smá bakgrunn í markaskorun,“ sagði Heiðdís. Með sigrinum komst Breiðablik á topp deildarinnar.

„Það er gott að fá smá sjálfstraust og hvatningu,“ sagði Heiðdís að lokum.


Pepsi Max deild kvenna er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×