Urðu undir hundruð kílóa trjátoppi á meðan þær skoðuðu matseðilinn Kjartan Kjartansson og Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifa 14. september 2021 15:21 Frá Ameríkuströndinni á Tenerife. Myndin er úr safni. Vísir/Getty Ein íslensku kvennanna sem varð undir hluta af pálmatré á spænsku eyjunni Tenerife segir að toppur trésins hafi hrunið fyrirvaralaust á þær á meðan þær skoðuðu matseðilinn. Tvær þeirra liggja nú á gjörgæslu.
Slysið átti sér stað á Ameríkuströndinni í bænum Arona á suðvestanverðri Tenerife-eyju um klukkan 16:00 á sunnudag. Toppur pálmatrés hrundi þá skyndilega á fimm íslenskar konur á fimmtugsaldri sem sátu við veitingastað. Í samtali við Vísi segir ein kvennanna, sem ekki vildi koma fram undir nafni, að þær hefðu verið að skoða matseðilinn þegar toppurinn hrundi á þær fyrirvaralaust. Þær hafi allar lent undir trjátoppnum. Tvær þeirra séu alvarlega slasaðar en hinar með minniháttar áverka. Þær sem slösuðust meira fóru báðar í aðgerð í nótt og eru nú á gjörgæsludeild. Eiginmaður einnar þeirra sem slasaðist minna sagði Vísi í morgun að fjölskyldur þeirra væru væntanlegar til Tenerife. Þær þrjár sem slösuðust minna væru á leið heim til Íslands annað kvöld. Í tístinu frá slökkviliði Tenerife hér fyrir neðan má sjá slökkviliðsbíl á vettvangi slyssins við Francisco Andrade Fumero-götu á sunnudag. Un operativo de #BomberosTF de San Miguel y Voluntarios de Adeje colaboraron con el #SUC en la atención sanitaria de varias personas que recibieron el impacto de un trozo de palmera que cayó en Avda Rafael Puig Lluvina (Las Verónicas). No estaban atrapadas. @112canarias pic.twitter.com/X7UrBYH6Ty— Bomberos de Tenerife (@BomberosTf) September 12, 2021 Á upplýsingasíðu yfirvalda á Kanaríeyjum kemur fram að þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang hafi konurnar ekki verið fastar undir trénu. Eiginmaðurinn sagði Vísi í morgun að þrír Íslendingar hafi komið konunum til bjargar og náð að lyfta trjáhlutanum af þeim. Sú sem slasaðist mest var sögð 47 ára gömul og með alvarlega fjöláverka. Önnur 45 ára gömul var mikið marin en ekki talin alvarlega slösuð og sú þriðja, 47 ára gömul, var marin á andliti og með áverka á mjóhrygg en annars ekki talin mikið slösuð. Konan sem Vísir ræddi við sagði að hvasst hafi verið á sunnudaginn en svo virtist sem að ekkert hafi verið hugsað um trén sem standa við göngugötu. Hún telur að toppurinn sem féll hafi vegið mörg hundruð kíló og að hann hafi hrunið úr fimm til sex metra hæð. Á mynd sem birtist í staðarmiðlinum Diario de Avisos virðist stofn pálmatrésins hafa gefið sig rétt undir laufkrónunni.
Spánn Íslendingar erlendis Lentu undir pálmatré á Tenerife Kanaríeyjar Tengdar fréttir Verulega slasaðar eftir að pálmatré féll á þær á Tenerife Tvær íslenskar konur eru verulega slasaðar á gjörgæsludeild eftir að pálmatré féll á þær og þrjár aðrar fyrir utan veitingastað á spænsku eyjunni Tenerife á sunnudag. Símum kvennanna var stolið þar sem þær lágu í sárum sínum, að sögn eiginmanns einnar þeirra. 14. september 2021 09:14 Þrjár íslenskar konur slösuðust þegar pálmatré féll á þær Þrjár íslenskar konur eru slasaðar eftir að hafa orðið fyrir pálmatré í bænum San Miguel de Abona á spænsku eyjunni Tenerife í gær. 13. september 2021 20:09 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Erlent Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV Innlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent Sautján greinst með kíghósta og inflúensan enn að dreifa sér Innlent Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent Rússar og Bandaríkjamenn í návígi á herstöð í Níger Fréttir Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael Erlent Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Erlent Fleiri fréttir Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Sjá meira
Verulega slasaðar eftir að pálmatré féll á þær á Tenerife Tvær íslenskar konur eru verulega slasaðar á gjörgæsludeild eftir að pálmatré féll á þær og þrjár aðrar fyrir utan veitingastað á spænsku eyjunni Tenerife á sunnudag. Símum kvennanna var stolið þar sem þær lágu í sárum sínum, að sögn eiginmanns einnar þeirra. 14. september 2021 09:14
Þrjár íslenskar konur slösuðust þegar pálmatré féll á þær Þrjár íslenskar konur eru slasaðar eftir að hafa orðið fyrir pálmatré í bænum San Miguel de Abona á spænsku eyjunni Tenerife í gær. 13. september 2021 20:09