Landsins forni fjandi talinn varasamur

Hafís við Húsavík.
Hafís við Húsavík. Hafþór Hreiðarsson

Rannsóknarstofa í eldfjallafræði og náttúruvá við Háskóla Íslands birti í dag yfirlitskort yfir hafísjaðar og lagnaðar- og fjarðaís norðan við landið. Varað er við því að hætta sér út á ótraustan ísinn. 

Kortið er unnið út frá túlkun á ratsjármyndum úr gervitungli. Vesturhluti íssins var myndaður snemma í dag en austurhlutinn að morgni gærdags.

Lagnaðarísinn er landfastur og færist ekki mikið, en fjarðaísinn fylgir straumum og sjávarföllum. Í báðum tilvikum getur vindur myndað öldur sem brýtur ísinn upp á stuttum tíma og því er varasamt að hætta sér út á hann.

Skipið Náttfari siglir í gegnum hafísinn við Húsavík.
Skipið Náttfari siglir í gegnum hafísinn við Húsavík. Hafþór Hreiðarsson

Venjulega ekki ótraustur

Venjulega telst hafís ekki ótraustur en samkvæmt rannsóknarstofunni ber fólki að hafa varann á í aðstæðum sem þessum. 

Í Facebook-færslu rannsóknarstofunnar kemur fram að börnum á Akureyri, á fyrri hluta 20 aldar, hafi verið sagt „að passa sig ef vindur snerist til austlægrar áttar á Pollinum: þá myndi ís, sem annars virtist traustur, brotna upp hratt og mikil hætta væri á ferð.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert