Guðni Th.: Armbeygjur eru ekki verri á grasi en plastdýnu

Í síðustu viku braut Guðni Th. Jóhannesson forseti þá reglu sína um að læka ekki efni á samfélagsmiðlum. Það var líksamræktarstöðin Hress í Hafnarfirði sem fékk lækið.

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Auglýsing

„Í síð­ustu viku braut ég eigin reglu um að læka ekki efni á sam­fé­lags­miðl­u­m, setti læk við færslu vina minna sem reka lík­ams­rækt­ar­stöð­ina Hress en ákváðu að hafa hana áfram lok­aða um skeið,“ skrifar Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, í færslu á Face­book-­síðu sinni. Hann seg­ist í ræðu og riti hafa hvatt til auk­innar áherslu á lýð­heilsu í sam­fé­lag­inu öllu og hollrar hreyf­ingar sem nærir lík­ama og sál. Í þeim efnum séu lík­ams­rækt­ar­stöðvar nauð­syn­leg­ar, staðir þar sem fólk hitt­ist, hreyfir sig og nýtur leið­sagnar sér­þjálfaðs liðs.



„Gott er að vita til þess að opnun lík­ams­rækt­ar­stöðva var ströngum skil­yrðum háð og að bæði eig­endur þeirra og við­skipta­vinir ein­setji sér að sjálf­sögðu að fylgja þeim,“ skrifar Guðni. „En þegar við erum að reyna að fækka smit­leið­um, fækka þeim sem þurfa að fara í sótt­kví hverju sinni og halda þess­ari þriðju bylgju veirunnar í skefjum er sjálf­sagt að um stund­ar­sakir leiti sem flestir ann­arra leiða til að hlaupa, lyfta og teygja en að hóp­ast saman inni í lík­ams­rækt­ar­stöð. Til þess er guðs­græn nátt­úran til­val­in. Arm­beygjur eru ekki verri á grasi en plast­dýn­u.“



Guðni von­ast til þess að hægt verði að búa svo um hnút­ana sem fyrst að fólk geti nýtt sér lík­ams­rækt­ar­stöðv­ar, sund­laugar og aðra staði til heilsu­bót­ar.

Auglýsing


„Tak­mörk á manna­mótum snú­ast um það að sé maður með smit án þess að vita af því er ill­skárra að maður hafi ekki verið í fjöl­menni dag­inn út og inn. Hafi maður verið í mik­illi nánd við aðra fjölgar þeim til muna sem þurfa að fara í sótt­kví til að stemma stigu við því að þau smiti fjöl­marga aðra og svo koll af kolli. Þess vegna segir sig líka sjálft að vakni grunur um smit, hvað þá full­vissa, á ekki að láta eins og ekk­ert hafi í skorist, hvort sem er á lofti, láði eða leg­i,“ skrifar for­set­inn.



„Vissu­lega geta hömlur valdið gremju og þreytu, jafn­vel van­líð­an. Á því verðum við að taka en ætti að slaka á til­mælum og leið­bein­ingum væri að margra mati rétt­ast að hefja leik­inn með því að heim­ila íþrótta­æf­ingar og skipu­lagðar tóm­stundir barna og ung­menna. Því er fagn­að­ar­efni að senn verða þær aftur leyfðar um allt land. Við sem erum eldri skulum þreyja þorr­ann og tek ég því undir þessi sjón­ar­mið heil­brigð­is­ráð­herra: „Hver og einn verður svo að leggja á það mat fyrir sitt leyti hvort hann vill gera allt sem heim­ilt er innan ramma gild­andi tak­mark­ana eða hvort hann vill ganga skemur til að draga enn frekar úr smit­hættu, eins og okkur er öllum í sjálfs­vald sett.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent