„Þá er hægur leikur að leyfa annan vopnaburð“ Ólafur Björn Sverrisson skrifar 24. janúar 2023 17:40 Þórunn Sveinbjarnardóttur finnst óásættanlegt að Jón Gunnarsson hafi ekki rætt áform sín um að heimila rafbyssunotkun lögreglu við félaga sína innan ríkisstjórnar áður en sú ákvörðun var tekin. Umboðsmaður Alþingis setur einnig spurningamerki við þau vinnubrögð ráðherra. vísir/vilhelm Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir skýringum frá Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra, á því hvers vegna reglugerðarbreytingar sem snúa að því að veita lögreglumönnum rafbyssur hafi ekki verið teknar til umræðu innan ríkisstjórnar. Þingmaður Samfylkingar segir að ef hægt sé að leyfa rafbyssur án samráðs við ríkisstjórn sé hægur leikur að leyfa annan vopnaburð.
Frá spurningunum umboðsmanns er greint á vef embættisins. Þar segir að í bréfi umboðsmanns til ráðherra í gær hafi verið bent á að samkvæmt lögum um Stjórnarráð Íslands skuli halda ríkisstjórnarfundi um mikilvæg stjórnarmálefni. Með hliðsjón af því er ráðherra beðinn um að skýra frá ýmsu sem tengist aðdraganda þess að lögreglu var heimiluð notkun rafbyssa. Þórunn Sveinbjarnardóttir, þinmaður Samfylkingarinnar, fylgdi málinu eftir á Alþingi í dag og vísar til fyrrgreindrar fyrirspurnar. Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.Vísir/Vilhelm „Þessi ákvörðun flokkast alveg örugglega undir stjórnarmálefni sem eiga heima á ríkisstjórnarfundi, til umræðu þar og samráðs. Ég velti fyrir mér hvert þetta gæti leitt, af því að ef hægt er að leyfa rafbyssur með þessum hætti þá er hægur leikur að leyfa annan vopnaburð.“ Dómsmálaráðherra og fulltrúar frá ríkislögreglustjóra voru gestir á fundi allsherjar- og menntamálanefnd í dag þar sem Jón sagði að það hafi staðið til lengi að breyta reglunum. Þá hafi Alþingi fyrir mörgum árum í raun veitt ráðherra heimild til að breyta reglunum og reglur um notkun rafbyssa lengi verið í gildi, þó sú heimild hafi ekki verið nýtt. Í síðustu viku var upplýst um að dómsmálaráðherra hafi undirritað reglugerðina skömmu fyrir áramót, sem vakti athygli þar sem ráðherra greindi frá fyrirætlunum sínum um rafbyssuvæðinguna 30. desember. Strax í kjölfarið lýstu þingmenn innan Vinstri grænna því að tíðindin hafi komið sér á óvart. Meiri umræða þyrfti að eiga sér stað áður en ákvörðun um rafbyssurnar væri tekin. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði að öllu máli skipti hvernig eftirliti með vopnaburði lögreglu yrði háttað, áður en henni yrðu veittar auknar heimildir. Nú hefur Umboðsmaður Alþingis blandað sér í málið og óskar þess að Jón upplýsi um hvort honum hafi verið kunnugt um þá afstöðu forsætisráðherra sem áður greinir að samtal um þetta mál þyrfti að eiga sér stað innan ríkisstjórnar. Umboðsmaður vill einnig vita hvenær Jón hafi undirritað breytingu á fyrrgreindum reglum og hvenær reglurnar voru sendar til birtingar í Stjórnartíðindum. Einnig er óskað upplýsinga um hvort ráðherra hafi gefið ríkislögreglustjóra einhver fyrirmæli um undirbúning fyrir framkvæmd reglnanna og þá án tillits til birtingar þeirra í Stjórnartíðindum. Loks óskar umboðsmaður þess að ráðherra skýri hvort og á grundvelli hvaða mats hann telji óþarft að bera málið upp á ríkisstjórnarfundi og vísar þar bæði til laga um Stjórnarráð Íslands og 17. gr stjórnarskránnar þar sem segir að ráðherrafundi skuli halda um mikilvæg stjórnarmálefni. Svars er óskað „með tilliti til þess hvort téð stjórnvaldsfyrirmæli hafi falið í sér mikilvæga stefnumörkun eða áherslubreytingar,“ eins og það er orðað á vef embættisins.
Rafbyssur Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Lögreglan Alþingi Umboðsmaður Alþingis Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Innlent Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Innlent Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Innlent Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Einar segir forsetaembættið um ekki neitt Svona gæti bensínstöðvarreiturinn við Ægisíðu litið út Ákærð fyrir að kæfa son sinn með kodda Börn lögð inn með kíghósta „Við reyndum eins og við gátum“ Framkvæmdanefnd fyrir Grindavík sett á laggirnar Sambærileg rúðubrot í Lækjargötu og á Skólavörðustíg Skipar framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Spellvirkinn lætur til skarar skríða á ný Svona var Pallborðið með Höllu Hrund, Katrínu og Baldri Svandís boðar til blaðamannafundar Heyrist meira af kjaftæði um lyf en vísindalegum staðreyndum Sautján greinst með kíghósta og inflúensan enn að dreifa sér Sjá meira