Íslenski boltinn

Hrun á Hlíðarenda: Tvöfalt fleiri töp hjá Val á síðustu 24 dögum en allt síðasta sumar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Haukur Páll Sigurðsson er fyrirliði Valsmanna.
Haukur Páll Sigurðsson er fyrirliði Valsmanna. Vísir/Bára Dröfn

Valsmenn hafa klúðrað bæði Íslandsmeistaratitlinum og bikarmeistaratitlinum á rúmum þremur vikum og Evrópusætið er að renna þeim úr greipum líka.

Heimir Guðjónsson gerði Valsmenn að Íslandsmeisturum á sínu fyrsta ári með liðið og liðið tapaði aðeins tveimur leikjum samanlagt í 21 deildar- og bikarleik í fyrra.

Íslandsmeistaratitil og liðið var komin í undanúrslit bikarsins þegar þeirri keppni var aflýst.

Síðustu 24 dagar hafa verið Valsmönnum vandræðalega erfiður og má segja að það sé í raun algjört hrun á Hlíðarenda.

Valsmenn féllu úr Mjólkurbikarnum eftir 2-1 tap á móti Lengjudeildarliði Vestra í gær en hafði áður tapað þremur leikjum í röð í Pepsi Max deildinni.

Töpin í Pepsi Max deildinni voru 2-1 á móti Víkingum 22. ágúst, 2-1 tap á móti Stjörnunni 28. ágúst og loks 3-0 tap á móti Blikum 11. september.

Valsmenn töpuðu tveimur síðustu leikjunum fyrir landsleikjahlé og hafa síðan tapað tveimur fyrstu leikjunum eftir landsleikjagluggan líka.

Valur á ekki lengur möguleika á því að vinna titil á tímabilinu og er komið alla leið niður í fimmta sæti í Pepsi Max deildinni. Evrópusæti er því eiginlega bara vonin ein.

  • Valur allt 2020 tímabilið í deild og bikar
  • 21 leikur
  • 17 sigrar
  • 2 töp
  • +39 í markatölu (58-19)
  • -
  • Valur 2021 tímabilið fyrir 20. ágúst í deild og bikar:
  • 19 leikir
  • 13 sigrar
  • 3 töp
  • +21 í markatölu (36-15)
  • -
  • Valur 2021 tímabilið eftir 20. ágúst í deild og bikar:
  • 4 leikir
  • 0 sigrar
  • 4 töp
  • -6 í markatölu (3-9)



Fleiri fréttir

Sjá meira


×