Stefnir í áhorfendamet þrátt fyrir að enn sé tæpt ár í leikinn Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 4. febrúar 2023 08:01 Búast má við að Íslendingar fjölmenni á EM í handbolta á næsta ári sem fer fram í mekka handboltans, Þýskalandi. Vísir/Vilhelm Þrátt fyrir að enn séu 342 dagar í fyrsta leik Evrópumótsins í handbolta sem fer fram í Þýskalandi á næsta ári er nú þegar búið að selja um það bil 40 þúsund miða á leikinn. Það er því nokkuð öruggt að áhorfendamet verði slegið á leiknum, enda eru enn 10 þúsund miðar lausir.
Nýafstaðið heimsmeistaramót í handbolta hefur greinilega vakið gríðarlegan áhuga fólks á íþróttinni, en áður en heimsmeistaramótið hófst höfðu aðeins selst um 18 þúsund miðar á fyrsta leik næsta Evrópumóts. Á lokadegi heimsmeistaramótsins tilkynnti Mark Schober, formaður þýska handknattleikssambandsins, að búið væri að selja 40 þúsund miða á leikinn. What a rush for #ehfeuro2024 tickets 🎟 40k already sold for the opening day in Dusseldorf. But there’s so much more. 🤩 📲 Check out all venues at https://t.co/LxSDiAe0O2 and see the best teams play next January 📆👀 pic.twitter.com/p9bQvAdiAy— EHF EURO (@EHFEURO) February 3, 2023 Áhorfendametið á handboltaleik er í dag 44.189 áhorfendur, en það var sett árið 2014 á leik Rhein-Neckar Löwen og HSV Hamburg. Sá leikur fór fram á fótboltavellinum í Frankfurt, Deutsche Bank Arena. Opnunarleikur EM í handbolta á næsta ári mun hins vegar fara fram á fótboltavellinum Merkur Spiel-Arena í Düsseldorf, en sá völlur tekur 50 þúsund manns í sæti. Það stefnir því allt í að áhorfendametið verði slegið þegar Evrópumótið í handbolta hefst í janúar á næsta ári. Eins og staðan er núna verða ekki seldir fleiri miðar í bili þar sem þeir miðar sem eftir eru eru eyrnamerktir stuðningsmönnum þjóðanna sem munu spila leikinn. Vitað er að Þjóðverjar munu spila þennan leik, en enn á eftir að koma í ljós hverjir verða andstæðingar þeirra.
EM 2024 í handbolta Mest lesið Stuðningurinn ómetanlegur: „Farið í dýpstu leyndarmálin“ Sport Gummi Ben og félagar tímamældu leiktafir KR-ingsins Íslenski boltinn Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins Enski boltinn Farangurinn flæktist fyrir Gísla: „Kom beint af flugvellinum“ Handbolti Sjáðu Hummels gera það sem Mbappé og félögum tókst ekki Fótbolti Stórveldi með gjörólíka hugmyndafræði berjast um sæti í úrslitum Fótbolti „Dómur þarna í restina sem ákveður úrslitin“ Körfubolti Ræðir veru sína í rússnesku fangelsi í nýrri bók Körfubolti Enn hægt að fá miða á HM-leikinn í kvöld Handbolti Gat ekki staðið upp til að taka við bikarnum Sport Fleiri fréttir Bleyjur og klósettpappír áhorfenda kostuðu ÍBV Enn hægt að fá miða á HM-leikinn í kvöld Farangurinn flæktist fyrir Gísla: „Kom beint af flugvellinum“ Undanúrslit í Meistaradeildinni klár „Bara að fara heim og hitta mömmu“ Fjórir frá vegna meiðsla: „Dagurinn ekkert frábær á skrifstofunni“ „Höfum spilað vel án Arons áður“ „Veit ekki hvað Elmar þarf að gera til að komast í landsliðið“ Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Uppgjör og viðtöl: FH - ÍBV 34-27 | Aronslausir FH-ingar tryggðu sér sæti í úrslitum Guðmundur og Íslendingalið Ribe-Esbjerg í undanúrslit Afturelding einum sigri frá úrslitum Magdeburg á toppinn eftir stórleik Íslendinganna Fyrsta tap lærisveina Guðjóns Vals síðan í byrjun mars Öruggt hjá Teiti Erni og félögum HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Grótta upp í Olís eftir sigur með minnsta mun í oddaleik Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Jóhanna Margrét frábær í góðum sigri Skara Viggó fór á kostum í góðum sigri Leipzig Reiður Einar hellti sér yfir eftirlitsdómarana Hættir eftir að hafa komið Fjölni upp „Við vorum bara ekki á svæðinu“ Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri PSG tókst ekki að leika ótrúlega endurkomu Kiel eftir Fjölnir tryggði sér sæti Olís deildinni á næsta tímabili Svekkjandi tap lækkar líkurnar hjá lærisveinum Arnórs Kielce kærir leikinn gegn Magdeburg Sjá meira