Sjáðu frábært mark Arons í sigri Sirius Smári Jökull Jónsson skrifar 4. júní 2023 17:30 Aron Bjarnason skoraði fyrir Sirius. Sirius Aron Bjarnason var á skotskónum hjá Sirius sem vann góðan heimasigur á Värnamo í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Þá komu tveir Íslendingar við sögu í toppslag.
Fyrir leikinn í dag var Sirius með átta stig í 13. sæti deildarinnar og aðeins eitt stig niður til stórliðsins IFK Gautaborg sem situr í umspilssæti um fall og AIK sem er í fallsæti. Värnamo var fjórum stigum á undan Sirius og því um mikilvægan leik að ræða. Aron kom Sirius í forystu á 31.mínútu þegar hann skoraði eftir sendingu Andre Alsnati. Sirius spilaði úr hornspyrnu og Aron fékk boltann við vítateigslínuna, lagði hann fyrir sig og þrumaði í netið. Glæsilegt mark og heimaliðið komið yfir. Aron Bjarnason ger IK Sirius ledningen hemma mot IFK Värnamo! Se matchen på https://t.co/ocJJkbIhfX pic.twitter.com/RYTiLOs9tZ— discovery+ sport (@dplus_sportSE) June 4, 2023 Tashreeq Matthews tvöfaldaði forystu Sirius úr vítaspyrnu í uppbótartíma fyrri hálfleiks og hvorugu liðinu tókst að bæta við mörkum í síðari hálfleiknum. Lokatölur 2-0 fyrir Sirius og mikilvægur heimasigur í höfn. Hákon Rafn Valdimarsson og Sveinn Aron Guðjohnsen voru báðir í byrjunarliðinu hjá toppliði Elfsborg sem mætti Djurgården í toppslag. Djurgården var í fjórða sæti fyrir leikinn og þurfti sigur til að nálgast toppinn enn frekar. Djurgården kvitterar mot Elfsborg! Nyss inbytte Victor Edvardsen sätter 1-1-målet för bortalaget! Se matchen på https://t.co/ocJJkbIhfX pic.twitter.com/ca0c7lR4ju— discovery+ sport (@dplus_sportSE) June 4, 2023 Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Johan Larsson Elfsborg yfir strax á fyrstu mínútu síðari hálfleiks. Victor Edvardsen jafnaði á 73. mínútu eftir skógarferð Hákons Rafns. Lokatölur 1-1 og lék Hákon Rafn allan leikinn í marki Elfsborg en Sveinn Aron fór af velli á 88. mínútu. Elfsborg er enn í efsta sætinu, einu stigi á undan Malmö FF sem á leik til góða á morgun.
Sænski boltinn Mest lesið Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Fótbolti Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Íslenski boltinn „Þetta einvígi er rétt að byrja“ Handbolti Indiana Pacers í úrslit Austurdeildarinnar eftir sigur í oddaleik Körfubolti Schauffele hélt út og tryggði sér sigur með fugli á átjándu Golf Lærisveinar Freys einum leik frá því að takast hið ómögulega Fótbolti „Þetta eru tvö dúndurlið“ Körfubolti Uppgjör: FH - Afturelding 29-32 | Mosfellingar taka forystuna Handbolti „Þarf að sjá eld í staðinn fyrir einhverja hræðslu“ Körfubolti Meistararnir köstuðu frá sér þriggja marka forystu Fótbolti Fleiri fréttir Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Hákon skoraði en Lille er á leið í umspil Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Lærisveinar Freys einum leik frá því að takast hið ómögulega Meistararnir köstuðu frá sér þriggja marka forystu Albert kom inn af bekknum er Genoa tapaði gegn tíu Rómverjum Valur og Þróttur flugu inn í átta liða úrslit Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð United skemmdi kveðjupartý De Zerbi Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Klopp kvaddi með sigri Ísak lagði upp mark í fyrsta byrjunarliðsleiknum Missti af rauðvínsglasi með Sir Alex Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Sjá meira